Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Faggilding - ISAC Forsíða
Faggilding - ISAC Forsíða

Faggilding - ISAC

Breytt greiðslufyrirkomulag

26. janúar 2026

Breytingar á greiðslufyrirkomulagi sem stuðli að auknu gagnsæi og betra jafnvægi í innheimtu, öllum hlutaðeigandi til hagsbóta.

ISAC vill hér með upplýsa viðskiptavini sína um breytingar á greiðslufyrirkomulagi sem taka gildi á yfirstandandi ári.

Ný gjaldskrá ISAC tók gildi í október 2024 og var hún lögð til grundvallar innheimtu gjalda á árinu 2025.

Í kjölfar endurskoðunar á innheimtufyrirkomulagi hefur verið ákveðið að breyta framkvæmd gjaldtöku. Í stað þess að rukka fyrir allar úttektir í lok árs, líkt og tíðkast hefur undanfarin ár, verður framvegis rukkað fyrir grunngjald og tæknisvið á fyrsta ársfjórðungi hvers árs. Að auki verður rukkað sérstaklega fyrir hverja úttekt yfir árið.

Markmið breytinganna er að jafna kostnaðardreifingu fyrir viðskiptavini og tryggja jafnari tekjuflæði hjá ISAC.

Einnig viljum við tilkynna að þau fyrirtæki sem eru með faggildingu í gegnum Swedac verða hér eftir rukkuð beint af Swedac, en ekki í gegnum ISAC.

ISAC vonar að breytt fyrirkomulag stuðli að auknu gagnsæi og betra jafnvægi í innheimtu, öllum hlutaðeigandi til hagsbóta.

Faggilding - ISAC

ISAC

kt. 520319 2120

Heim­il­is­fang

Katrínartún 4
105 Reykjavík

Hafðu samband

Sími: 580 9400
Netfang: isac@isac.is

Kvart­anir og ábend­ingar

Smelltu hér