Fara beint í efnið

Prentað þann 28. apríl 2024

Stofnreglugerð

1550/2023

Reglugerð um Tollskóla ríkisins og skilyrði fyrir veitingu starfa við tollgæslu.

I. KAFLI Hlutverk Tollskóla ríkisins, stjórn og starfslið.

1. gr. Hlutverk Tollskóla ríkisins.

Tollskóli ríkisins skal starfræktur af Skattinum.

Tollskóli ríkisins annast kennslu í almennum tollfræðum.

Tollskóli ríkisins veitir starfsfólki Skattsins sí- og endurmenntun, framhalds- og sérmenntun á sviði tollamála.

Tollskóli ríkisins heldur námskeið um ýmis atriði á sviði tollamála fyrir þá sem eiga í samskiptum við tollyfirvöld.

2. gr. Stjórn og starfslið.

Ríkisskattstjóri veitir Tollskóla ríkisins forstöðu og ræður skólastjóra, kennara og annað starfslið til skólans.

Skólastjóri annast daglega stjórn og rekstur skólans og ber ábyrgð á faglegu starfi innan hans.

Skipuð skal skólanefnd sem vera skal ráðgefandi um starfsemi skólans. Nefndin skal vera vettvangur skoðanaskipta um námsefni, reglur skólans og skyld efni.

Skólanefnd skal skipuð ríkisskattstjóra og/eða fulltrúa hans, tollgæslustjóra og/eða fulltrúa hans og fulltrúa Tollvarðafélags Íslands. Ríkisskattstjóri eða fulltrúi hans, skal vera formaður skólanefndar. Skólastjóri situr fundi skólanefndar.

II. KAFLI Almennt grunnnám tollvarða.

3. gr. Inntökuskilyrði.

Ríkisskattstjóri ákveður að höfðu samráði við skólastjóra svo fljótt sem því verður við komið hvenær skuli þreyta inntökupróf í Tollskóla ríkisins. Skólastjóri tilkynnir um framkvæmd inntökuprófa hverju sinni í samráði við skólanefnd.

Settur tollvörður skal hafa hafið nám við Tollskóla ríkisins innan tveggja ára frá setningu hans.

Ákvæði 1. og 2. mgr. eiga ekki við um tollverði sem eru settir til afleysinga.

4. gr. Réttindi og skyldur nemenda.

Tollverðir sem kvaddir eru til náms við Tollskóla ríkisins skulu vera launaðir á meðan á námi stendur. Lög nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, gilda um tollverði í námi.

Nemendur skulu lúta reglum skólans meðan á námsdvöl þeirra stendur. Skólastjóri setur almennar reglur um hegðun, mætingu, klæðaburð og hvernig með skuli fara ef reglum er ekki fylgt. Skólareglur skulu tilgreina hvernig standa skuli að tímabundinni og/eða varanlegri brottvikningu nemenda úr skólanum komi til brota á skólareglum.

5. gr. Tilhögun náms og námskrá.

Námi við Tollskóla ríkisins skal skipt í grunnnám, sbr. 6. og 7. gr., og starfsnám, sbr. 8. gr.

Kennslustundir í grunnnámi og starfsnámi skulu vera a.m.k. 475 og vera í samræmi við námskrá skólans, sbr. 3. mgr.

Skólastjóri skal gefa út námskrá fyrir skólann þar sem tilgreindar eru þær námsgreinar sem eru kenndar í grunnnámi, sbr. 6. og 7. gr.

Skólastjóra er heimilt, í samráði við ríkisskattstjóra, að veita nemendum leyfi til þess að stunda fjarnám við skólann, að hluta eða að öllu leyti. Jafnframt getur skólastjóri ákveðið að einstaka nemendur stundi fjarnám við skólann.

6. gr. Námsgreinar.

Eftirfarandi námsgreinar eru ávallt í grunnnámi við Tollskóla ríkisins:

  1. Tollalöggjöf og stjórnkerfið: Nemendum skulu kynnt í grundvallaratriðum ákvæði laga um tollamál. Áhersla skal lögð á almenna fræðslu um skipan tollamála innan stjórnkerfisins og aðrar þær grundvallarreglur er þar að lúta, s.s. reglur um meðferð opinberra mála. Einnig skal farið yfir starfsheimildir þeirra sem fara með tollgæsluvald.
  2. Tollflokkun og tollafræði: Nemendum skal veitt fræðsla um uppbyggingu flokkunarkerfis tollskrárinnar, meginreglur um flokkun vara í tollskránni og notkun helstu skýringarrita. Farið skal yfir helstu reglur sem gilda um afhendingu og frágang tollskýrslu, vörureiknings og annarra fylgiskjala. Kennd skulu undirstöðuatriði við ákvörðun tollverðs og útreikning aðflutningsgjalda. Þá skal farið yfir samninga við erlend ríki á sviði tollamála.
  3. Tollgæslufræði: Nemendum skal gerð grein fyrir starfssviði tollgæslunnar og helstu eftirlitsþáttum sem tengjast samgöngum við landið. Kynntar skulu í meginatriðum þær aðferðir er tollgæslan beitir við eftirlitsstörf, m. a. til þess að hindra ólöglegan inn- og útflutning.
  4. Skýrslugerð: Kennd skulu grundvallaratriði skýrslugerðar. Farið skal yfir niðurröðun efnis, málfar og efnisatriði frumskýrslna. Þá skal farið yfir eftirtalin atriði: Tilgang skýrslugerðar, notkun skýrslueyðublaða og niðurröðun efnis, vörulýsingu, móttöku og sendingu tilkynninga, réttarstöðu vitna og grunaðra, vettvangslýsingu og skráningu, röðun og vistun skjala.
  5. Löggæsluæfingar: Kennd skulu undirstöðuatriði við handtöku og sjálfsvörn.
  6. Skyndihjálp: Nemendur skulu fá kennslu og æfingu í viðbrögðum við björgun manna frá drukknun, skyndihjálp og áfallahjálp.
  7. Verklegar æfingar: Nemendur skulu hljóta þjálfun í framkvæmd ýmissa tollgæsluaðgerða, upplýsinga- og áhættugreiningu og meðferð og beitingu tollgæslutækja.

7. gr. Aðrar námsgreinar.

Skólastjóri kveður nánar á um námsefni, sbr. ákvæði um lengd náms og námskrá í 5. gr. Skólastjóri skal hafa samráð við skólanefnd við ákvörðun annarra námsgreina en skv. 6. gr. og í því efni skal tekið mið af þörfum og áherslum hverju sinni.

8. gr. Starfsnám.

Nemendum skal séð fyrir starfsnámi þar sem áhersla er lögð á sem víðtækasta kynningu og þjálfun í að takast á við hin ýmsu verkefni tollafgreiðslu og tolleftirlits.

Starfsnám skal skipulagt af skólastjóra í samráði við ríkisskattstjóra og skal því hagað í samræmi við reglur skólans.

Á starfsþjálfunartíma skal næsti stjórnandi gefa skólanum skýrslu um starfsnám nemenda, m.a. um framfarir þeirra og annað sem máli kann að skipta um starfshæfni.

9. gr. Námsmat og prófkröfur.

Í lok hverrar námsgreinar skal frammistaða nemenda metin og þeim gefin einkunn í heilum og hálfum tölum á skalanum 1-10, lágmarkseinkunn í hverri námsgrein er 5,0. Fyrir verklega þjálfun, þ.m.t. starfsnám, skal gefa einkunnina fullnægjandi eða ófullnægjandi.

Nemanda er heimilt að taka upptökupróf einu sinni í hverri námsgrein hafi hann fengið undir 5,0 í einkunn.

Skrifleg próf dæmir hlutaðeigandi kennari einn. Nemandi á rétt á að fá útskýringar kennara á mati skriflegrar úrlausnar sinnar, ef hann óskar eftir því innan 15 daga frá birtingu einkunnar. Vilji nemandi ekki una mati kennarans, getur hann snúið sér til skólastjóra. Ef skólastjóri telur, að höfðu samráði við skólanefnd, að útskýringar kennara séu ekki fullnægjandi skipar hann prófdómara.

Við munnleg próf skal vera prófdómari sem skólastjóri skipar.

Kennarar eða meirihluti nemenda geta óskað skipunar prófdómara í einstökum prófum, hvort sem er munnlegum eða skriflegum, telji þeir til þess sérstaka ástæðu.

Þegar prófdómari er skipaður, skulu hann og viðkomandi kennari dæma úrlausn eða frammistöðu í sameiningu. Hvor um sig gefur sjálfstæða einkunn fyrir úrlausn, eða metur frammistöðu, og vegur einkunn þeirra eða mat jafnt við lokaeinkunnagjöf. Skólastjóri setur nánari reglur um framkvæmd prófa.

10. gr. Námskeið á vegum annarra skólastofnana.

Skólastjóra er heimilt í samráði við viðkomandi skólayfirvöld að láta kennslu og próf í einstökum námsgreinum fara fram í almennum skólum og sérskólum skólakerfisins telji hann kennslu betur fyrir komið með þeim hætti.

III. KAFLI Annað nám við Tollskóla ríkisins.

11. gr. Framhalds- og sérmenntun.

Framhaldsmenntun tollvarða skal miða að því að gera þá hæfari á sínu starfssviði. Námsefni skal ákveðið af skólastjóra og skólanefnd, sem ákveður fjölda þátttakenda í fræðslu hverju sinni.

Sérhæfð námskeið á sviði tollamála skulu haldin þegar þurfa þykir að mati skólastjóra og skólanefndar. Á sérmenntunarnámskeiðum skal leitast við að efla hæfni og skilning tollvarða á sérsviðum þeirra.

12. gr. Námskeið fyrir aðila utan Skattsins.

Tollskóli ríkisins heldur námskeið fyrir aðra en starfsmenn Skattsins um ýmis atriði er lúta að samskiptum við tollyfirvöld. Þá er skólastjóra heimilt að veita öðrum aðgang að völdum námsgreinum í grunnnámi við skólann.

Tollskóla ríkisins er heimilt að fela viðurkenndum fræðsluaðilum framkvæmd náms, námsþátta eða námsgreina að hluta eða öllu leyti.

IV. KAFLI Skilyrði fyrir veitingu starfa við tollgæslu.

13. gr. Sérstök hæfisskilyrði.

Þeir sem settir verða í störf tollvarða þ.m.t. til afleysinga, skulu auk almennra skilyrða 6. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, fullnægja eftirtöldum skilyrðum:

  1. Hafa lokið að lágmarki stúdentsprófi eða öðru sambærilegu námi með fullnægjandi árangri eða starfsþjálfun sem jafna má til slíks náms.
  2. Hafa náð 20 ára aldri.
  3. Hafa gott vald á íslensku og ensku.
  4. Hafa almenn ökuréttindi.
  5. Vera syndir.

14. gr. Skipun tollvarða.

Til að fá skipun sem tollvörður verður umsækjandi eða starfandi tollvörður að hafa staðist próf frá Tollskóla ríkisins eða hlotið menntun sem skólanefnd metur sambærilega sé þess óskað.

V. KAFLI Önnur ákvæði.

15. gr. Gildistími og lagastoð.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 193. gr. tollalaga, nr. 88/2005 og öðlast gildi þegar í stað. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð, nr. 48/2010 um Tollskóla ríkisins og ráðningu, setningu og skipun í störf við tollendurskoðun og tollgæslu.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 21. desember 2023.

F. h. r.

Helga Jónsdóttir.

Brynhildur Kr. Aðalsteinsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.