Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 28. des. 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 8. júlí 2017
Sýnir breytingar gerðar 8. júlí 2017 af rg.nr. 615/2017

1148/2008

Reglugerð um gerð gæðavísa sem notaðir eru til að meta gæði og árangur innan heilbrigðisþjónustunnar.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi fjallar um gerð gæðavísa sem notaðir eru til að meta gæði og árangur í heilbrigðisþjónustu.

2. gr. Markmið.

Markmið reglugerðar þessarar er að kveða á um val, notkun og birtingu gæðavísa í þeim tilgangi að stuðla að umbótum innan heilbrigðisþjónustunnar og efla gæði og öryggi.

3. gr. Orðskýringar.

Í reglugerð þessari merkir:

  1. Gæði í heilbrigðisþjónustu: Að hve miklu leyti heilbrigðisþjónusta eykur líkur á bættri heilsu og auknum lífsgæðum fyrir einstaklinga og samfélag og að hve miklu leyti þjónustan er veitt í samræmi við bestu þekkingu sem völ er á.
  2. Gæðavísir: Mælikvarði sem gefur vísbendingu um gæði þeirrar þjónustu sem veitt er til að meta hvort gæði meðferðar og umönnunar séu í samræmi við viðurkennd viðmið.
  3. Heilbrigðisþjónusta: Hvers kyns heilsugæsla, lækningar, hjúkrun, almenn og sérhæfð sjúkrahúsþjónusta, sjúkraflutningar, hjálpartækjaþjónusta og þjónusta heilbrigðisstarfsmanna innan og utan heilbrigðisstofnana sem veitt er í því skyni að efla heilbrigði, fyrirbyggja, greina og meðhöndla sjúkdóma eða endurhæfa sjúklinga.
  4. Heilbrigðisstarfsmaður: Einstaklingur sem starfar við heilbrigðisþjónustu og hlotið hefur leyfi heilbrigðisráðherra til að nota starfsheiti löggiltrar heilbrigðisstéttar.
  5. Notandi heilbrigðisþjónustu: Sjúklingur.
  6. Meginþættir gæða í heilbrigðisþjónustu: Öryggi, rétt tímasetning, skilvirk þjónusta, jafnræði, notendamiðuð þjónusta og árangursrík þjónusta.
  7.  Veitendur heilbrigðisþjónustu: Þeir sem veita heilbrigðisþjónustu skv. c-lið.
  8.  Landsgæðavísir: Gæðavísir, skv. b-lið, sem ákvarðaður er fyrir allt landið af embætti landlæknis og gefur kost á samanburði milli sams konar heilbrigðisstofnana eða heilbrigðisþjónustu.

4. gr. Markmið með notkun gæðavísa.

Markmið með notkun gæðavísa er að fylgjast með gæðum og öryggi heilbrigðisþjónustunnar og stuðla að því að þessir þættir séu sýnilegir þannig að notendur heilbrigðisþjónustu, stjórnvöld, stjórnendur heilbrigðisstofnana og heilbrigðisstarfsmenn geti metið gæði þjónustunnar og tekið ákvarðanir á faglegum og upplýstum grundvelli.

Markmið með notkun gæðavísa er ennfremur að veita heilbrigðisstarfsmönnum og heilbrigðisstofnunum aðhald við veitingu heilbrigðisþjónustu, auka gæðavitund þeirra, skapa samkeppni á milli þeirra um árangur og gæði og stuðla þannig að umbótum innan heilbrigðisþjónustunnar.

5. gr. Meginþættir gæða í heilbrigðisþjónustu.

Gæðavísar sem valdir eru til að mæla gæði og árangur innan heilbrigðisþjónustunnar skulu falla undir einhvern af eftirfarandi meginþáttum gæða í heilbrigðisþjónustu:

  1. Öryggi: Að sjúklingar hljóti ekki skaða af þeirri þjónustu sem ætluð er til að bæta heilsu þeirra og lífsgæði.
  2. Rétt tímasetning: Að biðtími sé styttur og dregið úr seinkunum sem geta verið skaðlegar fyrir notendur heilbrigðisþjónustunnar og að aðgengi að þjónustunni sé gott.
  3. Skilvirk þjónusta: Að aðföng (fjármagn, tækjabúnaður, mannauður) séu nýtt á hagkvæman hátt með það fyrir augum að ná settum markmiðum.
  4. Jafnræði: Réttur sjúklings til fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem á hverjum tíma er völ á að veita óháð kynferði, trú, skoðunum, þjóðernisuppruna, kynþætti, litarhætti, efnahag, ætterni og stöðu að öðru leyti.
  5. Notendamiðuð þjónusta: Að heilbrigðisþjónusta sé veitt með virðingu fyrir þörfum og væntingum notenda heilbrigðisþjónustu og að brugðist sé við þeim.
  6. Árangursrík þjónusta: Að heilbrigðisþjónusta byggð á bestu þekkingu sem völ er á sé veitt öllum þeim sem gætu notið góðs af henni en ekki þeim sem líklegt er að þjónustan komi ekki að gagni.

6. gr. Val á gæðavísum.

Veitendur heilbrigðisþjónustu skulu velja gæðavísa sem lýsa gæðum þjónustunnar út frá sjónarhóli notenda, heilbrigðisstarfsmanna og stjórnenda.

 Landlæknir skal velja gæðavísalandsgæðavísa sem lýsa gæðum út frá sjónarhóli notenda, heilbrigðisstarfsmanna, stjórnenda og stjórnvalda.

 Embætti landlæknis hefur eftirlit með að veitendur heilbrigðisþjónustu hafi valið sér gæðavísa, sem uppfylli gerðar kröfur skv. reglugerð þessari.

Eftirtalin viðmið skulu lögð til grundvallar við val á gæðavísum:

  1. Mikilvægi; gæðavísir skal gefa upplýsingar um heilbrigðisþjónustu, sjúkdóma eða líðan sem eru mikilvægar fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu og/eða endurspegla mikilvæg heilsufarsvandamál.
  2. Gildi; gæðavísir skal vera þannig að sýnt hafi verið fram á með rannsóknum að hann hafi til að bera áreiðanleika og réttmæti.
  3. Mælanleiki; gæðavísir skal vera mælanlegur.
  4. Möguleikar til að hafa áhrif; gæðavísir skal vera þannig að notkun hans geti leitt til umbóta.
  5. Einsleitni hvað túlkun áhrærir; gæðavísir skal vera samanburðarhæfur.

7. gr. Birting gæðavísa.

LandlæknirVeitendur skal gefa heilbrigðisstofnunum og heilbrigðisstarfsmönnum fyrirmæli um að nota gæðavísa skv. reglugerð þessari. Fyrirmælinheilbrigðisþjónustu skulu lögð fyrir ráðherra til staðfestingar og birtingar, sbr. 1. mgr. 5. gr. laga um landlækni.

 Landlæknir skal birta upplýsingar um niðurstöður gæðavísa skv. 1. mgr. 6. gr. þannig að þær séu aðgengilegar fyrir notendur, heilbrigðisstofnanir, heilbrigðisstarfsmenn, stjórnendur og stjórnvöld.

 Landlæknir skal birta upplýsingar um niðurstöður landsgæðavísa þannig að þær séu aðgengilegar fyrir notendur, heilbrigðisstofnanir, heilbrigðisstarfsmenn, stjórnendur og stjórnvöld.

8. gr. Gildistaka

Reglugerð þessi er sett með stoð í 3. mgr. 11. gr. laga um landlækni og öðlast þegar gildi.

 Heilbrigðisráðuneytinu, 5. desember 2008. 

 Guðlaugur Þór Þórðarson. 

 Vilborg Þ. Hauksdóttir. 

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.