Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 22. des. 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 24. nóv. 2007
Sýnir breytingar gerðar 24. nóv. 2007 af rg.nr. 1110/2007

910/2000

Reglugerð um eignaskiptayfirlýsingar, útreikning hlutfallstalna o.fl. í fjöleignarhúsum.

1. gr. Hugtakið eignaskiptayfirlýsing.

Eignaskiptayfirlýsing er lögboðinn skriflegur gerningur eigenda fjöleignarhúss sem gerður er á grundvelli fyrirmæla fjöleignarhúsalaga og geymir lýsingu á húsinu og lóð þess og mælir fyrir um skiptingu þess í séreignir, sameign allra og sameign sumra og ákvarðar hlutdeild hvers eigenda í sameign og markar með því grundvöll að réttindum og skyldum eigenda innbyrðis og gagnvart einstökum hlutum húss og lóðar.

2. gr. Skylda til að gera eignaskiptayfirlýsingu.

Gera skal eignaskiptayfirlýsingu um fjöleignarhús og lóðir þeirra ef ekki er fyrir hendi áður gerður og þinglýstur, fullnægjandi og glöggur skiptasamningur.

Eignaskiptayfirlýsing skal undirrituð af eigendum eða stjórn húsfélags eftir nánari fyrirmælum í 2. mgr. 16. gr. fjöleignarhúsalaga nr. 26/1994 og skal henni þinglýst að fenginni staðfestingu viðkomandi byggingarfulltrúa sem áritar hana þar um, sbr. 26. og 27. gr. reglugerðar þessarar.

3. gr. Heimildarbréf gagnvart eldri þinglýstum skiptagerningum.

Heimildarbréfum fyrir eignum í fjöleignarhúsi verður ekki þinglýst nema þau séu í samræmi við fyrirliggjandi skiptasamning eða skiptayfirlýsingu.

Sé um minniháttar frávik eða misræmi er þinglýsing þó heimil með viðeigandi athugasemd.

Þinglýsingarstjóri skal eftir 1. janúar 2001 synja um þinglýsingu á heimildarbréfum fyrir eignum í fjöleignarhúsi ef hann telur fyrirliggjandi skiptagerning ekki vera fullnægjandi og glöggan samkvæmt þeim sjónarmiðum sem um ræðir í 4. gr.

4. gr. Mat á fyrirliggjandi skiptagerningi og þörf á nýrri eignaskiptayfirlýsingu

Mat á því hvort fyrirliggjandi skiptagerningur sé fullnægjandi og glöggur og hvort þörf sé á nýrri eignaskiptayfirlýsingu, sbr. 3. gr., skal byggt á hagsmunum, þörfum og forsendum eigenda og eðli og tilgangi slíkra gerninga samkvæmt fjöleignarhúsalögum og þeim eignarréttarsjónarmiðum og lagaviðhorfum sem búa að baki þeim.

Sé fyrir hendi þinglýstur skiptagerningur, sem tilgreinir a.m.k. séreignir og hlutfallstölur þeirra í sameign og ekki fer augljóslega í bága við ófrávíkjanleg ákvæði fjöleignarhúsalaga og eigendur vilja hafa áfram til grundvallar í skiptum sínum, er ekki þörf á að gera nýja eignaskiptayfirlýsingu meðan ekki kemur fram formleg krafa frá einhverjum eigenda þar af leiðandi, sbr. 3. mgr. 4. gr. og 7. gr.

Um rétt eiganda, sem telur eldri skiptagerning rangan eða ófullnægjandi, til að krefjast þess að ný eignaskiptayfirlýsing verði gerð segir í 7. gr.

Einstök atriði og ákvæði eldri skiptagerninga, sem fara í bága við ófrávíkjanleg ákvæði fjöleignarhúsalaga, skulu þoka fyrir þeim, sbr. 77. gr. þeirra laga.

5. gr. Einföld fjöleignarhús, parhús, raðhús o.þ.h.

Ekki er þörf á að gera sérstaka eignaskiptayfirlýsingu þegar skipting húss og réttarstaða eigenda liggur ljós fyrir og engin nauðsyn, hvorki hvað eigendur né húsið snertir, kallar á að slík yfirlýsing sé gerð.

Í 1. mgr. er átt við einfaldari gerðir fjöleignarhúsa þar sem skipting húsa og lóða og sameignin og hlutdeild í henni liggur ljós fyrir, svo sem parhús, raðhús og önnur sambyggð og samtengd hús.

Við mat á því hvort eignaskiptayfirlýsing sé óþörf samkvæmt grein þessari skal horfa til sömu sjónarmiða og getur í 1. og 2. mgr. 4. gr.

6. gr. Ráðstafanir vegna breyttra forsendna skiptagernings.

Hafi forsendur eignaskiptayfirlýsingar eða skiptasamnings raskast vegna breytinga á húsi eða eignarhaldi skulu eigendur láta gera nauðsynlegar breytingar eða leiðréttingar á henni og láta þinglýsa þeim.

Skal um þannig viðauka við eignaskiptayfirlýsingar fara að fyrirmælum reglugerðar þessarar eftir því sem við getur átt.

Þegar um verulegar breytingar er að ræða skal gera nýja eignaskiptayfirlýsingu frá grunni.

7. gr. Réttur til að krefjast nýrrar eignaskiptayfirlýsingar.

Sérhver eigandi, sem telur gildandi hlutfallstölur fyrir húsið rangar eða fyrirliggjandi skiptagerning ófullnægjandi eða rangan að öðru leyti, getur krafist þess að ný eignaskiptayfirlýsing verði gerð í samræmi við fyrirmæli fjöleignarhúsalaga og reglugerðar þessarar.

Sama gildir þegar enginn þinglýstur skiptasamningur eða eignaskiptayfirlýsing liggur fyrir.

8. gr. Efnisatriði eignaskiptayfirlýsingar.

Í eignaskiptayfirlýsingu, sbr. 17. gr. fjöleignarhúsalaga, skal m.a. koma fram:

a. tilgreining á fjöleignarhúsinu,
b. almenn lýsing á húsinu,
c. lýsing á séreignarhlutum,
d. hlutfallstölur, forsendur þeirra og útreikningur,
e. sérstakur bílskúrs- og bílastæðisréttur,
f. byggingarréttur,
g. lýsing á sameign allra,
h. lýsing á sameign sumra,
i. sérgreining, auðkenni og merkingar samkvæmt fasteignaskrá/landskrá fasteigna,
j. kvaðir á séreign, sameign og lóð,
k. sérstakur réttur eigenda til sameignar eða hluta hennar.

9. gr. Nánar um efni eignaskiptayfirlýsingar.

Í eignaskiptayfirlýsingu skal skipting húss koma glöggt fram og tilgreint hvað tilheyrir hverjum eignarhluta, hvort um sé að ræða séreign, sameign allra eða sameign sumra og hvaða eignarhlutum slík sameign tilheyrir.

Í eignaskiptayfirlýsingu skal og greina frá forsendum hennar og þeim gögnum sem hún er reist á og fylgja henni.

Sé um að ræða frávik eða afbrigði frá venjulegri tilhögun eða útfærslu skal þeirra glögglega getið.

10. gr. Fylgigögn eignaskiptayfirlýsingar.

Með eignaskiptayfirlýsingu skulu fylgja grunnmyndir og sniðmyndir af hverri hæð húss, þar sem hvert rými er merkt í samræmi við skráningarreglur, sbr. l. mgr. 16. gr.

Jafnframt skal fylgja afstöðumynd er sýni sérnotafleti á lóð og skiptingu lóðar eftir því sem við á.

Skráningartafla, sbr. 3. mgr. 16. gr., skal fylgja eignaskiptayfirlýsingu.

Eignaskiptayfirlýsingu skal fylgja til þinglýsingar teikning af húsinu og lóðaruppdráttur í blaðstærð A4 og stærðir í fermetrum og rúmmetrum.

Um heimild Fasteignamats ríkisins til að krefjast gagna samkvæmt þessari grein á tölvutæku formi segir í 29. gr.

11. gr. Leyfi til að gera eignaskiptayfirlýsingar.

Þeim einum er heimilt að taka að sér að gera eignaskiptayfirlýsingar sem uppfylla lögmælt skilyrði og hafa fengið til þess leyfi frá félagsmálaráðherra.

Ef leyfishafi gerist sekur um grófa eða ítrekaða handvömm eða vanrækslu á skyldum sínum getur félagsmálaráðherra svipt hann starfsleyfinu.

Byggingarfulltrúar og starfsmenn Fasteignamats ríkisins skulu tilkynna félagsmálaráðherra ef þeir verða þess áskynja að leyfishafi hafi brotið af sér eða vanrækt skyldur sínar með rangri eða villandi upplýsingagjöf eða með öðrum þeim hætti sem varðað getur leyfissviptingu, sbr. 2. mgr.

12. gr. Skyldur og ábyrgð þeirra er eignaskiptayfirlýsingar gera.

Þeir sem eignaskiptayfirlýsingar gera skulu vanda vel til þeirra og gæta þess að þar komi fram öll atriði og upplýsingar sem mælt er fyrir um í fjöleignarhúsalögunum og reglugerð þessari og eru þeir ábyrgir fyrir því að eignaskiptayfirlýsingin sé rétt miðað við þau gögn, upplýsingar og forsendur sem byggja skal á samkvæmt fjöleignarhúsalögunum og reglugerð þessari.

Höfundur eignaskiptayfirlýsingar skal í henni gera glögga grein fyrir því hvers eðlis hún er með tilliti til undirritunar eigenda, sbr. 2. mgr. 16. gr. fjöleignarhúsalaga. Sömuleiðis skal gerð grein fyrir því hvort um sé að ræða ósamræmi milli hlutfallstölu matshluta sem eignaskiptayfirlýsing tekur til og hlutdeildar annarra matshluta í heildarsameign, sbr. 24. gr. reglugerðar þessarar.

Höfundur eignaskiptayfirlýsingar skal með dagsettri eiginhandaráritun staðfesta ábyrgð sína skv. 2. og 3. mgr. og a-lið 16. gr. fjöleignarhúsalaga nr. 26/1994 með síðari breytingum.

13. gr. Samþykktar aðalteikningar til grundvallar.

Við gerð eignaskiptayfirlýsinga og útreikning hlutfallstalna skulu samþykktar aðalteikningar húss lagðar til grundvallar.

Þegar fyrirliggjandi teikningar eða upplýsingar um eldri fjöleignarhús hjá byggingarfulltrúa eru ófullkomnar er heimilt að byggja á þeim gögnum sem tiltæk eru og öðrum þeim forsendum sem réttar þykja, enda skal þess þá skilmerkilega getið í eignaskiptayfirlýsingunni.

Við mat á því hvort tilvik eigi undir 1. mgr. eða 2. mgr. skal byggt á þeim sjónarmiðum sem færð eru fram í 2. mgr. 14. gr.

14. gr. Um eldri hús gagnvart gildandi byggingarreglugerð.

Eignir sem eignaskiptayfirlýsing tekur til skulu eftir því sem við verður komið uppfylla kröfur og skilyrði gildandi byggingarreglugerðar um skiptingu húsa og lóða.

Sé um að tefla fjöleignarhús sem byggð eru eða hefur verið breytt í tíð eldri byggingarreglugerða verður núgildandi reglugerð ekki fortakslaust beitt. Ríkari kröfur í því efni, en eðlilegar og sanngjarnar geta talist miðað við atvik og aðstæður, t.d. hagsmuni, kostnað og fyrirhöfn eigenda, verða ekki gerðar.

15. gr. Eign eða notkun ekki í samræmi við samþykkta aðalteikningu.

Ef eignaskiptayfirlýsing tilgreinir húsrými, lóð eða notkun fjöleignarhúss eða hluta þess með öðrum hætti en fram kemur á samþykktri aðalteikningu getur byggingarfulltrúi skorað á eigendur að sækja um byggingarleyfi fyrir breytingunum og gefið þeim sanngjarnan frest í því skyni.

Sinni eigendur ekki áskorun byggingarfulltrúa staðfestir hann eignaskiptayfirlýsinguna með viðeigandi athugasemd.

Með sama hætti og segir í 1. og 2. mgr. skal fara ef í ljós koma verulegar breytingar á notkun eða grunnmynd innan eignarhluta.

Sé þinglýst eignarheimild ekki í samræmi við samþykktar aðalteikningar er eiganda rétt að sækja um leyfi byggingarnefndar til afmörkunar eignarhlutans.

Um þýðingu staðfestingar byggingarfulltrúa í þeim tilvikum sem um ræðir í þessari grein vísast til 27. gr. og um heimildir og úrræði hans til 32. gr.

16. gr. Stærðarútreikningar og skráningartafla.

Stærðarútreikningar skulu gerðir samkvæmt skráningarreglum Fasteignamats ríkisins og byggingarfulltrúa um mannvirki, sem eru fylgiskjal með reglugerð þessari, og samkvæmt íslenskum staðli, ÍST 50, um flatarmál og rúmmál bygginga.

Komi í ljós misræmi milli skráningarreglnanna og reglna ÍST 50 ganga hinar fyrrnefndu framar.

Allar stærðir, merkingar, tilgreiningar og aðrar færslur skal færa í sérstaka skráningartöflu sem byggist á reglum þeim sem um getur í 1. mgr., þó að undanskildum dálkum 14 og 15 í skráningartöflunni.

Breytingar á skráningarreglunum eru hvað reglugerð þessa varðar háðar staðfestingu félagsmálaráðherra og birtingu með sama hætti og reglugerðir.

17. gr. Rúmmál og útreikningur hlutfallstalna.

Rúmmál samkvæmt reglugerð þessari er margfeldi af nettóflatarmáli og salarhæð.

Við ákvörðun hlutfallstalna í fjöleignarhúsi skal byggt á rúmmáli að viðbættu botnflatarmáli svala og sams konar séreignarflata x 1 m. Sama gildir ef þess háttar flötur er í sameign sumra.

Ef um er að ræða opin rými skal eftir því sem við á leggja við rúmmálið brúttórúmmál rýma í lokunarflokki B margfaldað með 0,6 og botnflatarmál rýma í lokunarflokki C x 1 m.

Skilgreiningar lokunarflokka eru í skráningarreglum Fasteignamats ríkisins og byggingarfulltrúa, sbr. fylgiskjal með reglugerð þessari.

Hlutfallstölur bílastæða í sameiginlegum bílageymslurýmum skulu vera jafnar.

18. gr. Hlutfallstölur í sameign allra.

Hlutfallstölur í sameign allra skal reikna sem hlutfall rúmmáls viðkomandi séreignarhluta af heildarrúmmáli séreigna.

Ef um sameign sumra er að ræða skal fyrst reikna hlutdeild viðkomandi séreignarhluta í rúmmáli í sameign sumra. Það rúmmál skal svo leggja við rúmmál viðkomandi séreignarhluta og síðan reikna hlutfallstölur fyrir sameign allra samkvæmt 1. mgr. þessarar greinar.

19. gr. Hlutfallstölur í sameign sumra.

Hlutfallstölur í sameign sumra skal reikna sem hlutfall rúmmáls viðkomandi séreignarhluta af heildarrúmmáli séreigna sem hlutdeild eiga í slíkri sameign.
Þegar sameignarrými tilheyrir öllum séreignum í matshluta telst það sameign allra í matshlutanum, ella fellur það undir sameign sumra.

20. gr. Hlutfallstölur í húsum með fleiri en einum matshluta.

Þegar reiknaðar eru út hlutfallstölur í húsi með fleiri en einum matshluta skal við útreikning hlutfallstölu í sameign húss fyrst reikna hlutfallstölu hvers matshluta og leggja til grundvallar brúttórúmmál matshluta og eftir því sem við á brúttórúmmál rýma í lokunarflokki B margfaldað með 0,6 og botnflatarmál rýma í lokunarflokki C x 1 m. Svalir eru ekki reiknaðar með.

Hlutfallstala hverrar eignar er fundin sem margfeldi hlutfallstölu matshlutans og hlutfallstölu eignar í matshluta.

21. gr. Hlutfallstölur í lóð.

Við útreikning hlutfallstalna í lóð, með fleiri en einum matshluta, skal fyrst reikna hlutfallstölu matshluta í lóð og leggja til grundvallar brúttórúmmál matshluta og eftir því sem við á brúttórúmmál rýma í lokunarflokki B margfaldað með 0,6 og botnflatarmál rýma í lokunarflokki C x 1 m. Svalir reiknast ekki með.

Hlutfallstala hverrar eignar í lóð er margfeldi hlutfallstölu matshlutans og hlutfallstölu eignar í matshluta. Sérnotafletir í lóð hafa ekki áhrif á hlutfallstölur í sameiginlegri lóð.

22. gr. Skipting hitakostnaðar.

Þar sem ekki eru fyrir hendi sérstakir mælar til þess að mæla hitakostnað í sameign skal hann reiknaður út og honum skipt þannig:

1. Hlutdeild sameignar allra í hitakostnaði skal reikna sem hlutfall brúttórúmmáls upphitaðs rýmis í sameign allra af brúttórúmmáli upphitaðs rýmis í því mannvirki eða eign sem hitamælir er fyrir og þannig fundnum og reiknuðum hitakostnaði sameignar allra skal skipta jafnt á alla séreignarhluta.
2. Hlutdeild sameignar sumra í hitakostnaði skal reikna sem hlutfall brúttórúmmáls upphitaðs rýmis í sameign sumra af brúttórúmmáli upphitaðs rýmis í því mannvirki eða eign sem hitamælir er fyrir og þannig fundinn og reiknaður hitakostnaður sameignar sumra skiptist jafnt milli þeirra eigna sem sameign sumra tilheyrir.
3. Þeim hitakostnaði sem fellur á séreignir skal skipta milli þeirra í réttu hlutfalli við brúttórúmmál upphitaðs rýmis þeirra.

23. gr. Skipting rafmagnskostnaðar.

Þar sem ekki eru fyrir hendi sérstakir mælar til þess að mæla rafmagnskostnað í sameign skal hann reiknaður út og honum skipt þannig:

1. Sé rafmagn í sameign á mæli tiltekinnar séreignar skal áætla aflnotkun og nýtingartíma tækja og búnaðar sem nýta rafmagnið í sameign og út frá þannig fundnum kwh-fjölda skal reikna rafmagnskostnað sameignar.
2. Þannig reiknuðum rafmagnskostnaði sameignar skal skipta jafnt milli þeirra séreignarhluta sem sameignin tilheyrir.
3. Á sama hátt skal fara með hliðstæð tilvik, svo sem ef rafmagn í sameign sumra og sameign allra er á sama mæli.

24. gr. Sérstök eignaskiptayfirlýsing fyrir hvern matshluta.

Þegar matshlutar eru fleiri en einn á lóð er heimilt að gera sjálfstæða eignaskiptayfirlýsingu fyrir hvern matshluta, enda komi þar fram hlutfallstala matshlutans í sameign allra, t.d. sameiginlegri heildarlóð.

Komi í ljós verulegt misræmi milli slíkrar hlutfallstölu og þinglýstrar hlutdeildar hinna matshlutanna, sem stafar af öðru en leiðréttingum og breyttum reikningsreglum, verður eignaskiptayfirlýsingunni ekki þinglýst nema eigendur hinna matshlutanna áriti hana um að þeir fyrir sitt leyti fallist á hlutfallstölu þá er um getur í 1. mgr.

Sá er eignaskiptayfirlýsingu gerir skal staðreyna hvort um misræmi skv. 2. mgr. sé að ræða og skýra ástæður þess í eignaskiptayfirlýsingunni.

Rísi ágreiningur milli eigenda matshluta um eignarhlutdeild og skiptingu kostnaðar vegna slíkrar sameignar geta eigendur hvers matshluta krafist útreiknings á hlutfallstölum allra matshluta í sameigninni og að gerð verði eignaskiptayfirlýsing samkvæmt reglugerð þessari sem tekur til hennar allrar, sbr. 18. gr. fjöleignarhúsalaga.

24. gr. a. Sérákvæði um hesthús. 

 Hlutfallstölur í sameign allra skal reikna sem hlutfall hestafjölda sem skráður er í viðkomandi séreign af heildarhestafjölda sem skráður er í hesthúsi samkvæmt skráningartöflu, sbr. 16. gr. Um bása og stíustærðir í hesthúsi fer samkvæmt reglugerð um aðbúnað, umhirðu og heilbrigðiseftirlit hrossa, nr. 160/2006.

 Ef um sameign sumra er að ræða sem ekki er stía eða bás skal umreikna hana í básafjölda. Deila skal með tölunni fjórum í nettófermetrastærð sameignar sumra. Þannig fæst hve margra hesta stíu sameign sumra samsvarar. Hlutdeild sameignar sumra í hesthúsi skal reikna sem hlutfall þannig reiknaðs hestafjölda af heildarhestafjölda hússins að umreiknaðri sameign sumra meðtalinni. Hlutfallstölur í sameign sumra reiknast sem hlutfall skráðs fjölda hesta í viðkomandi séreign af skráðum heildarfjölda hesta þeirra séreigna sem sameign sumra tilheyrir.

 Hlutfallstölur í sameign allra skal reikna sem hlutfall hestafjölda sem skráður er í viðkomandi séreign af heildarhestafjölda sem skráður er í hesthúsi að viðlögðum umreiknuðum hestafjölda sameignar sumra. Hlutdeild séreignar í sameign allra skal hækka um sem nemur hlutdeild hennar í sameign sumra.

 Ef um séreign er að ræða sem ekki er bás eða stía skal fara með hana í útreikningi eins og sameign sumra.

 Hlutfallstölur kostnaðar af heitu og köldu vatni og rafmagnskostnaðar skulu vera þær sömu og fyrir sameign allra og sameign sumra þegar við á.

 25. gr. Skiptayfirlýsing fyrir önnur hús en fjöleignarhús.

Sé um að ræða matshluta eða hús sem ekki telst fjöleignarhús en fleiri en einn nýtir má ef þurfa þykir gera skiptayfirlýsingu um húsið til að skapa grundvöll að skiptingu réttinda og skyldna milli afnotahafa þess.

Er eigandi slíkrar húseignar við gerð slíkrar skiptayfirlýsingar óbundinn af fyrirmælum þessarar reglugerðar og er honum heimilt að gera skiptayfirlýsingu á öðrum forsendum og með öðrum hætti en hún mælir fyrir um.

Ef eignarhald að slíku húsi breytist þannig að það verði fjöleignarhús skal gera um það eignaskiptayfirlýsingu sem fullnægir fyrirmælum þessarar reglugerðar og fjöleignarhúsalaganna.

26. gr. Staðfesting byggingarfulltrúa á eignaskiptayfirlýsingu.

Byggingarfulltrúi viðkomandi umdæmis skal staðfesta allar eignaskiptayfirlýsingar og er áritun hans þar að lútandi skilyrði fyrir því að þeim verði þinglýst.

Staðfesting byggingarfulltrúa skal gerð með dagsettri áritun, nafnritun hans og embættisstimpli á a.m.k. þrjú eintök eignaskiptayfirlýsingarinnar.

Byggingarfulltrúi skal afgreiða eignaskiptayfirlýsingu svo fljótt sem auðið er og jafnan innan tveggja vikna frá því að hún barst honum.

Sé um flóknar og viðamiklar eignaskiptayfirlýsingar að ræða getur byggingarfulltrúi tekið sér lengri afgreiðslutíma en þó ekki lengur en fjórar vikur.

Sama gildir þegar verulegir ágallar á eignaskiptayfirlýsingu og fylgigögnum hennar kalla á lengri afgreiðslutíma, svo og þegar bíða þarf eftir skýringum.

27. gr. Inntak staðfestingar byggingarfulltrúa o.fl.

Í áritun byggingarfulltrúa felst staðfesting á viðtöku eignaskiptayfirlýsingar og að hún hafi verið yfirfarin og sé í samræmi við reglugerð þessa og lög um fjöleignarhús og fyrirliggjandi gögn hjá embætti hans.

Í staðfestingu byggingarfulltrúa felst hins vegar ekki viðurkenning eða samþykki á þeim breytingum á húsi eða notkun þess sem gerðar kunna að hafa verið án tilskilinna byggingarleyfa.

Byggingarfulltrúa er rétt nema eitthvað sérstakt mæli gegn því að byggja á upplýsingum og staðhæfingum frá höfundum eignaskiptayfirlýsinga sem þeir færa fram og veita að viðlagðri ábyrgð og réttindasviptingu ef rangar reynast, sbr. 11. og 12. gr. reglugerðar þessarar.

28. gr. Fjöldi eintaka.

Eignaskiptayfirlýsing og skráningartafla skal afhent byggingarfulltrúa í þremur samhljóða eintökum sem hann skal öll árita um staðfestingu, sbr. 1. og 2. mgr. 26. gr.

Eitt eintakið varðveitir byggingarfulltrúi, annað skal afhent eigendum eða umboðsmanni þeirra til þinglýsingar, en hið þriðja skal hann senda Fasteignamati ríkisins.

29. gr. Gögn á tölvutæku formi.

Skráningartafla með eignaskiptayfirlýsingu skal einnig afhent byggingarfulltrúa á tölvutæku formi samkvæmt forriti Fasteignamats ríkisins.
Þá getur Fasteignamat ríkisins mælt fyrir um að eignaskiptayfirlýsing og önnur gögn skv. 10. gr. skuli afhent byggingarfulltrúa einnig á tölvutæku formi, enda hafi það ekki í för með sér kostnaðaraukningu fyrir eigendur út frá þeim sjónarmiðum sem getur í 2. mgr. 14. gr.

Að lokinni yfirferð sinni skal byggingarfulltrúi innfæra skráningartöflu og eftir atvikum eignaskiptayfirlýsingu og önnur gögn og upplýsingar, sbr. 2. mgr., í fasteignaskrá/landskrá fasteigna.

30. gr. Krafa um skýringar og úrbætur. Frávísun. Staðfesting með eða án athugasemda.

Ef nauðsyn ber til getur byggingarfulltrúi krafið höfund eignaskiptayfirlýsingar um skýringar á þeim atriðum sem hann telur skýrleika skorta um og lagt fyrir hann að gera nauðsynlegar úrbætur á eignaskiptayfirlýsingunni.

Komi nauðsynlegar skýringar ekki fram eða krafa um úrbætur ber ekki árangur þannig að á eignaskiptayfirlýsingu séu áfram svo verulegir ágallar að ekki verði við unað er byggingarfulltrúa rétt að synja um staðfestingu og vísa henni frá.

Annars skal byggingarfulltrúi staðfesta eignaskiptayfirlýsingu annaðhvort athugasemdalaust eða með þeim athugasemdum og ábendingum sem hann telur rétt að gera.

31. gr. Frestun á staðfestingu til öflunar byggingarleyfis.

Eins getur byggingarfulltrúi, ef tilgreining og lýsing á fjöleignarhúsi eða hluta þess eða breytt notkun er ekki í samræmi við samþykkta teikningu, frestað áritun og gefið eigendum sanngjarnan frest til að sækja um byggingarleyfi.

Sé það ekki gert skal hann staðfesta eignaskiptayfirlýsinguna með viðeigandi athugasemd nema hann telji ágallana og misræmið svo stórvægilegt að ákvæði 2. mgr. 30. gr. eigi við.

Um heimildir og úrræði byggingarfulltrúa þegar ábendingum hans og kröfum er ekki sinnt vísast til ákvæða 32. gr.

32. gr. Um önnur úrræði byggingarfulltrúa.

Um heimildir og úrræði og viðurlög byggingarfulltrúa, til að knýja á um að fjöleignarhús og einstakir hlutar þeirra séu hvað skipan og hagnýtingu snertir í samræmi við samþykktar teikningar og uppfylli skilyrði og kröfur skipulags- og byggingarlöggjafar, fer eftir fyrirmælum þeirrar löggjafar.

33. gr. Heimildarlög. Gildistaka.

Reglugerð þessi sem er sett með heimild í lögum um fjöleignarhús, nr. 26/1994, öðlast þegar gildi.

Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 471/1997 um eignaskiptayfirlýsingar, útreikning hlutfallstalna o.fl. í fjöleignarhúsum.

 Félagsmálaráðuneytinu, 4. desember 2000. 

 Páll Pétursson. 

 Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir. 

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.