Þann 26. apríl næstkomandi verða liðin 40 ár frá kjarnorkuslysinu í Tsjernobyl. Af því tilefni efna Geislavarnir ríkisins og námsbraut í geislafræði við Háskóla Íslands, til málþings um áhrif kjarnorkuslysa, þróun geislavarna og viðbúnað við geislavá á Íslandi.