Þann 11. maí 2020 barst Persónuvernd bréf
Vinnumálastofnunar varðandi birtingu og miðlun upplýsinga um þau fyrirtæki sem
hafa starfsmenn sem nýtt hafa svokallaða hlutabótaleið samkvæmt lögum nr.
54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Í bréfinu voru settar fram spurningar
tengdar birtingu umræddra upplýsinga og því hvernig hún samrýmdist
persónuverndarlögum. Í svari Persónuverndar kemur meðal annars fram að
stofnunin telji að um birtingu og miðlun umrædda upplýsinga fari eftir
upplýsingalögum nr. 140/2012 og að Persónuvernd skeri ekki úr um lögmæti
afhendingar upplýsingar samkvæmt þeim lögum. Það sé hins vegar afstaða
Persónuverndar að lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga
girði ekki fyrir að umræddar upplýsingar séu birtar.