Leigutorg fyrir Grindavík
Á leigutorginu er að finna íbúðir sem eru til leigu í að minnsta kosti í þrjá mánuði.
Ferlið
Þú skráir þig inn á leigutorgið með rafrænum skilríkjum. Eingöngu einstaklingar sem voru með skráð lögheimili í Grindavík 10. nóvember 2023 komast inn á vefinn.
Þú skoðar þær eignir sem eru í boði á leigutoginu. Ef þér líst vel á eign þá sendir þú fyrirspurn á leigusala sem getur verið eigandi fasteignarinnar eða einhver sem fer með umboð fyrir hans hönd.
Hægt er að senda fyrirspurn á fleiri en eina eign en eingöngu er hægt að senda eina fyrirspurn á hverja eign.
Ef aðilar ná samkomulagi gera þeir með sér leigusamning. Til að fá sértækan húsnæðisstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavík þarf að senda leigusamninginn inn í Leiguskrá HMS.