Heilsuefling eldra fólks
Aldraðir eru mjög fjölbreyttur hópur bæði aldurs- og heilsufarslega séð. Það þarf að huga vel að heilsunni alla ævi og undirbyggja vel efri árin.
Fyrirbyggjandi aðgerðir eins og heilsuefling allt lífið vegur þar þungt til að draga úr þjónustuþörf síðar á ævinni.
Regluleg hreyfing hefur fjölþætt gildi fyrir heilsu og líðan á öllum æviskeiðum. Hún styður við ástundun annarra heilbrigðra lifnaðarhátta og spornar gegn og bætir ýmsa sjúkdóma og heilsufarskvilla.
Rannsóknir staðfesta mikilvægi hreyfingar fyrir eldra fólk
Betri heilaheilsu
Minni líkur á föllum
Almennt aukna getu til að sinna daglegum athöfnum
Auk þess að stuðla að betri andlegri og líkamlegri heilsu, ýtir hreyfing undir félagsleg samskipti og virkni almennt
Sveitarfélög hafa undanfarna áratugi unnið að því að bæta aðstöðu til fjölbreyttrar hreyfingar, innandyra sem utan. Má þar nefna inniaðstöðu í íþróttahúsum, útiæfingatæki, upphitaða göngustíga og bekki til að hvílast á með reglulegu millibili.
Hreyfingi að lágmarki þrisvar í viku þarf að vera þannig að púlsinn hækki, þú mæðist og svitnir eitthvað. Ávinningurinn er ótvíræður.
Í flestum sveitarfélögum stendur eldra fólki til boða hreyfing af ýmsu tagi. Á vefsíðunni Bjartur lífstíll er að finna hvaða hreyfing er í boði á landsvísu fyrir eldra fólk
Fjölmörg sveitafélög greiða eldri íbúum styrki til niðurgreiðslu á ýmissi þjálfun.
Hér má finna bækling með ráðleggingu um hreyfingu á ýmsum æviskeiðum.
Rannsóknir sýna að líkamleg, hugræn og félagsleg virkni eru öllum mikilvæg og spila stórt hlutverk þegar kemur að því að hægja á sjúkdómum eins og heilabilun. Sem dæmi um daglega hugræna virkni má nefna:
Læra eitthvað nýtt eins og tungumál eða á hljóðfæri
Leysa krossgátur og Sudoku
Leysa Orðlu
Ýmsar þrautir sem ná má í með öppum. Sérfræðingar mæla til dæmis með smáforritinu Lumosity sem hægt er að kaupa áskrift að. Forritið er aðeins á ensku en auðvelt í notkun. Kosturinn við það er að erfiðleikastigið breytist eftir getu þess sem það notar.
Pússluspil
Mörgum hættir til þegar látið er af störfum á vinnumarkaði að hætta að hitta annað fólk.
Mikilvægt er að halda áfram eða byrja að taka þátt í einhvers konar klúbba- eða félagsstarfi.
Dragi einstaklingar sig út úr slíku starfi er hætta á að þeir einangrist og að heilsufari hraki.
Mikið og öflugt félagsstarf fer fram víða um land, ýmist á vegum sveitafélaga eða félögum eldri borgara.
Allt of margir kvíða því að láta af launuðum störfum og fara að „gera ekki neitt“. Mjög mikilvægt er að undirbúa vel þetta æviskeið og sjá fyrir sér hvernig dögunum verður varið. Það þarf að endurskipuleggja lífið ekki síður en fjármálin.
Mörgum kemur á óvart þegar skrefið hefur verið stigið hversu fljótt dagarnir líða. Fyrir þá sem skortir hugmyndir er á VelVirk að finna 200 hugmyndir. Þar er ýmislegt hægt að gera þegar tíminn er nægur og heilsan góð. Þar er til dæmis listi yfir fjölmörg verkefni sem hægt er að vinna sem sjálfboðaliði, sem mörgum þykir gefa sér mikið.
Það er vel þess virði að staldra við og hugsa um þær tillögur sem þarna eru lagðar fram.
Eldra fólk þarf að hafa í huga að með aldrinum minnkar orkuþörfin, aðallega vegna vöðvarýrnunar og minni hreyfingar.
Á vef Embættis landlæknis er að finna ráðleggingar um mataræði fyrir eldra fólk og hvað hægt er að gera ef matarlyst minnkar.