Fara beint í efnið

9. febrúar 2023

Lyfjastofnun hefur stöðvað sölu og ávísanir á sýklalyfið Staklox í varúðarskyni

Danska lyfjastofnunin hefur tilkynnt að nokkrir sjúklingar í Danmörku, sem fengu sýklalyfið Dicillin (hylki) frá fyrirtækinu Sandoz frá september 2022 til janúar 2023 hafi fengið sýkingar af völdum sýklalyfjaónæmra baktería (karbapenemasa-myndandi).

Lyfjaspjald

Tiltekin framleiðslulota sýklalyfsins Dicillin sem seld var í Danmörku reyndist menguð af sömu bakteríu. Sambærilegt lyf er selt hérlendis undir heitinu Staklox en það er í hylkjum frá sama framleiðanda.

Lyfjastofnun hefur stöðvað sölu á Staklox hérlendis á meðan málið er í rannsókn. Einnig hefur Lyfjastofnun innkallað lyfið frá einstaklingum sem hafa fengið lyfinu ávísað. Ástæða þess að Staklox er innkallað hérlendis er að einn einstaklingur hér á landi sem hafði tekið lyfið í júlí 2022 fékk sýkingu af völdum sömu bakteríu og greindist í Danmörku.

Þeir sem eru að taka lyfið Staklox eru beðnir að skila lyfinu í næsta apótek sem fyrst. Samheitalyf frá öðrum framleiðanda, Dicloxacillin Bluefish, verður afhent í staðinn einstaklingum að kostnaðarlausu. Sjá tilkynningu Lyfjastofnunar.

Læknar á Íslandi eru einnig beðnir að beina ávísunum á önnur sýklalyf sé þess kostur til að viðhalda birgðum af samheitalyfinu. Nægar birgðir eru til af öðrum sýklalyfjum sem nota má í stað Staklox, svo sem lyfinu Keflex.

Ekki hefur enn verið staðfest hvort Staklox hylki hafi mengast af þeirri bakteríu sem greindist í Danmörku. Ef það kæmi í ljós þá bendum við á eftirfarandi:

  • Bakterían getur í einhverjum tilfellum tekið sér bólfestu í meltingarvegi (sýklun) og orðið hluti af sýklaflóru viðkomandi en ekki er vitað hve oft það gerist.

  • Bakterían smitast ekki auðveldlega milli manna við venjuleg samskipti en getur borist á milli manna með náinni snertingu og saur-munn smiti eins og aðrir iðrasýklar.

  • Sýklun leiðir ekki sjálfkrafa til sýkingar þar sem mikið af svipuðum bakteríum eru nú þegar í meltingarvegi.

  • Sýklar í meltingarvegi geta þó valdið sýkingum, ekki síst þvagfærasýkingum.

  • Engar vísbendingar eru um að þessi tiltekna baktería valdi frekar sýkingum en aðrar bakteríur af sömu tegund.

  • Prófanir hafa leitt í ljós að þrátt fyrir greint sýklalyfjaónæmi er þessi baktería næm fyrir mörgum öðrum sýklalyfjum og því eru ýmsir meðferðarkostir í boði.

  • Mikilvægt er að upplýsa ef einstaklingur hefur tekið mengað Staklox því það hjálpar að velja hentugt sýklalyf ef sýkingar koma upp.

  • Mikilvægt er að upplýsa ef einstaklingur hefur tekið mengað Staklox ef hann leggst inn á sjúkrastofnun vegna möguleika á að sýkillinn dreifi sér innan stofnunar.

Sjá einnig:

Sóttvarnalæknir