Fara beint í efnið

26. júlí 2019

Engin tilfelli af E. coli hafa greinst síðan 19. júlí

Undanfarna daga hefur saursýnum fækkað umtalsvert sem send hafa verið til rannsóknar á sýklafræðideild Landspítalans. Síðasti einstaklingurinn greindist 19. júlí sl. og enginn einstaklingur hefur greinst eftir að hafa verið í Efstadal eftir 18. júlí en þá hófust þar viðamiklar aðgerðir sem miðuðu að því að stöðva útbreiðslu smits af völdum E. coli.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Ekkert barn er nú inniliggjandi á Barnaspítala Hringsins en nokkrum börnum er enn fylgt eftir vegna sýkingarinnar.

Ofangreindar upplýsingar vekja vonir um að faraldrinum sé að ljúka.

Ekki er að vænta frekari upplýsinga af E. coli smiti fyrr en eftir helgina.  

 Sóttvarnalæknir