Fara beint í efnið

11. apríl 2018

Drög að endurskoðuðum ráðleggingum um mataræði á meðgöngu til umsagnar

Embætti landlæknis hefur birt drög að endurskoðuðum ráðleggingum um mataræði á meðgöngu. Ráðleggingarnar eru ætlaðar konum sem hyggja á barneignir, barnshafandi konum, og konum með börn á brjósti.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Embætti landlæknis hefur birt drög að endurskoðuðum ráðleggingum um mataræði á meðgöngu. Ráðleggingarnar eru ætlaðar konum sem hyggja á barneignir, barnshafandi konum, og konum með börn á brjósti.

Nú gefst tækifæri til að koma með athugasemdir við drög að ráðleggingunum og er gefinn frestur til 30. apríl til að koma athugasemdum á framfæri.

Ráðlagður er venjulegur góður matur á meðgöngu

Lögð er áhersla á að konur þurfi ekki sérfæði þótt þær eigi von á barni. Venjulegur matur, fjölbreyttur og hollur í samræmi við ráðleggingar embættis landlæknis um mataræði, fullnægir bæði þörfum barnsins og móðurinnar með fáeinum undantekningum. Barnshafandi konum er til dæmis ráðlagt að taka B-vítamínið fólat í töfluformi og gæta þess sérstaklega að borða fólatríkar matvörur. Einnig er barnshafandi konum eins og öðrum ráðlagt að taka D-vítamín aukalega. Vakin er athygli á aukinni þörf fyrir joð á meðgöngu en það er mikilvægt fyrir eðlilegan þorska fósturs. Helstu joðgjafar fæðisins eru fiskur og mjólk. Einnig er ómega-3 fitusýran, DHA, sérstaklega mikilvæg fyrir þroska miðtaugakerfis fóstursins. Ein máltíð af feitum fiski (t.d. laxi, bleikju, síld og makríl) auk tveggja máltíða af mögrum fiski (t.d. ýsu og þorski) á viku fara langleiðina með að uppfylla þörfina fyrir DHA en einnig er lýsi góður DHA gjafi.

Bent er á að rétt meðhöndlun matvæla er sérstaklega mikilvæg á meðgöngu og ýmis hrá matvæli eins og grafinn eða reyktan fisk, hrátt kjöt, hrá egg, hráar baunaspírur, ógerilsneydda mjólk og vörur úr ógerilsneyddri mjólk er best að varast á þessum tíma.

Ráðleggingarnar eru unnar af faghópi með fulltrúum frá embætti landlæknis, Þróunarstofu heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Matvælastofnun og Rannsóknastofu í næringarfræði. Við endurskoðunina var stuðst við Norrænar næringarráðleggingar frá árinu 2012, ýmsar vísindagreinar og einnig efni af vefnum Næring móður og barns.

Athugasemdir sendist til naering@landlaeknir.is, merkt: „Mataræði á meðgöngu".

Elva Gísladóttir og Hólmfríður Þorgeirsdóttir, verkefnisstjórar næringar hjá embætti landlæknis