Fara beint í efnið

29. júní 2021

Bólusetningar við COVID-19 í viku 26, 28. júní – 04. júlí

Tæplega 50 þúsund einstaklingar verða bólusettir í vikunni.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Tæplega 50 þúsund einstaklingar verða bólusettir í vikunni. Langflestir eru að fá seinni skammtinn af bólusetningunni.

Um 26 þúsund manns fá seinni skammtinn af AstraZeneca bóluefni og um 4 þúsund fá Moderna. Um 18 þúsund einstaklingar fá bóluefni Pfizer, langflestir seinni skammtinn.

Nánar um bólusetningar á covid.is, á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og á vef embættis landlæknis.

Sóttvarnalæknir