Fara beint í efnið

9. desember 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Persónuvernd kallar eftir skýringum

Persónuvernd hefur ákveðið að kalla eftir skýringum Landspítala - Háskólasjúkrahúss af tilefni ábendinga og kvartana&nbsp;yfir meðferð&nbsp;viðkvæmra persónuupplýsinga um 158 einstaklinga í tengslum við&nbsp;rannsókn á ofbeldi í nánum samböndum.&nbsp;Mun upplýsingum um þá hafa verið miðað frá LSH og dreift með tölvupósti.<br>

Þann 5. desember sl. barst Persónuvernd kvörtun einstaklings vegna miðlunar lista yfir netföng þátttakenda í rannsókninni „Ofbeldi í nánum samböndum“. Persónuvernd hefur ákveðið að óska eftir skýringum frá Landspítala-Háskólasjúkrahúsi.

Bréf Persónuverndar til Landspítala-Háskólasjúkrahúss.