Fara beint í efnið

Um atvinnuleit

Þjónustuskrifstofur Vinnumálastofnunar eru almennar opinberar vinnumiðlanir. Þar er atvinnuleitendum veitt fjölþætt aðstoð óháð því hvort viðkomandi er á atvinnuleysisskrá. Sú þjónusta er endurgjaldslaus.

Atvinnuleit

Þjónustuskrifstofur Vinnumálastofnunar eru staðsettar víðsvegar um landið. Hjá þjónustuskrifstofum er hægt að skrá sig í atvinnuleit og sækja um störf.

Atvinnuleitandi getur í samvinnu við ráðgjafa gert starfsleitaráætlun og fengið ráðgjöf um náms- og starfsval, gerð ferilskrár og fleira. Umsækjendum um atvinnuleysisbætur er skylt að gera slíka starfsleitaráætlun.

Fólki á atvinnuleysisskrá bjóðast námskeið, starfsþjálfun og önnur úrræði til þess ætluð að styrkja þá í starfsleit sinni.

Íslendingum er heimilt að leita vinnu í löndum innan Evrópska efnahagssvæðisins.

Einkareknar ráðningarþjónustur hafa laus störf á skrá og bjóða atvinnuleitendum í mörgum tilvikum upp á skráningu og almenn viðtöl.

Til minnis

  • Sækja um störf hjá Vinnumálastofnun og öðrum vinnumiðlunum.

  • Skrá sig á atvinnuleysisskrá Vinnumálastofnunar, kanna rétt sinn til bóta og sækja um ef við á.

Vert að skoða

Lög og reglugerðir

Þjónustuaðili

Vinnu­mála­stofnun