Fara beint í efnið

Atvinna með stuðningi

Einstaklingsmiðuð þjónusta fyrir fólk með skerta starfsgetu.

Markmið er að einstaklingur finni vinnu á almennum vinnumarkaði og ef óskað er eftir, veita viðkomandi stuðning í nýrri vinnu.

Stuðningur í atvinnuleit

Í atvinnuleitinni er lögð áhersla á samvinnu ráðgjafa og atvinnuleitandans. Ráðgjafar aðstoða meðal annars með:

  • Kynningu á ýmsum virkniúrræðum.

  • Starfsráðgjöf.

  • Aðstoð við ferilskrágerð.

  • Aðstoð við starfaleit og gerð umsókna.

  • Undirbúningur fyrir atvinnuviðtal. Ráðgjafi getur líka komið með í atvinnuviðtal sé þess óskað.

  • Aðstoð í ráðningarferlinu.

  • Kynning á vinnusamningi öryrkja þegar við á.

Stuðningur í starfi

Ef einstaklingur finnur vinnu við hæfi aðstoða ráðgjafar meðal annars með:

  • Aðstoð við að mynda tengsl á vinnustað, umfangið fer eftir óskum hvers og eins.

  • Stuðningur eftir þörfum.

  • Byggja upp stuðningsnet á vinnustað.

Skilyrði

Það eru engin sérstök skilyrði fyrir því að sækja um þessa þjónustu.

Að sækja um

Sótt er um á netinu í gegnum rafræn skilríki. Ef þörf er á er hægt að fá aðstoð hjá ráðgjöfum.

Atvinna með stuðningi

Ráðgjafi hefur samband

Þegar umsókn hefur verið send inn hefur ráðgjafi samband til að fara yfir næstu skref. Ráðgjafar hafa samband við öll sem sækja um.

Afgreiðslutími umsókna

Haft er samband við umsækjanda sem fyrst en það fer eftir álagstímum hversu fljótt ráðgjafar geta sett sig í samband.

Nám og námsstyrkir

Þau sem nýta sér þessa þjónustu geta líka farið á námskeið og sótt um námsstyrki sem eru í boði hjá Vinnumálastofnun.

Um allt land

Þjónustan er í boði um land allt. Þjónustuskrifstofur Vinnumálastofnunar eru 8 talsins, hringinn í kringum landið.

Tekjuáætlun hjá Tryggingastofnun

Ef einstaklingur fær greiðslur frá Tryggingastofnun þarf að athuga að uppfæra tekjuáætlun þegar vinna er hafin. Laun hafa oftast áhrif á greiðslur frá Tryggingastofnun. Það er hægt að uppfæra tekjuáætlunina á vef Tryggingastofnunar.

Ráðgjafar áfram til taks

Einstaklingur getur notað þjónustuna á meðan viðkomandi er í virkni eða í vinnu á almennum vinnumarkaði.

Frekari upplýsingar

ams@vmst.is

Sími: 515 4800

Þjónustuaðili

Vinnu­mála­stofnun