Fara beint í efnið

Hvernig breyti ég tekjuáætlun?

Á Mínum síðum TR er hægt að breyta tekjuáætlun, þegar þú hefur skráð þig inn smellir þú á hnappinn Tekjuáætlun og þar opnast yfirlit yfir tekjuáætlunina sem er nú þegar í gildi, þar er hægt að breyta upphæðunum og skila svo þegar þú ert sátt/ur. Einnig er hægt að koma til okkar í þjónustumiðstöð okkar í Hlíðasmára 11 í Kópavogi eða til umboðsmanna TR hjá sýslumönnum og fá aðstoð við að breyta.