Fara beint í efnið

Hvernig fullnýti ég dashboardin?

Til þess að fullnýta þennan tölfræðihluta í Zendesk mælum við með því að þið gerið ykkur vel kunnug um hvað tölfræðiborðin hafa upp á að bjóða og nýta það til þess að bæta þjónustuna ykkar. Hér eru dæmi sem þið getið haft í huga:

  • Við leggjum mikið upp úr því að flokka fyrirspurnir sem berast inn og taka þá tölfræði til þess að kanna hvort eitthvað megi bæta á vefnum ykkar út frá fyrirspurnunum sem berast.

  • Kanna hversu mikið af erindum er leyst með einni snertingu, og skoða ef stór hluti erinda þarf mörg fram og til baka samskipti, hvað mætti betur fara. Þurfum við frekari upplýsingar frá notandanum sem sendir fyrirspurnina? Er hægt að setja inn Macro sem biður um allar upplýsingar í einu, o.s.frv.

  • Á hvaða tímum eru erindin helst að berast? Getum við nýtt starfsaflið okkar í annað þegar það er oftast minna að gera.

Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?

merki

Þjón­ustu­kerfi fyrir stofn­anir

Ertu með ábendingu eða spurningu?