Fara beint í efnið

Hvernig sæki ég stafrænt ökuskírteini í iOS síma?

Hægt er að nálgast stafrænt ökuskírteini á tvo vegu:

Beint úr Ísland.is appinu, við mælum með því. Sækja Ísland.is appið

1. Skráðu þig inn á appið með rafrænum skilríkjum

2. Þar smellirðu á „Skírteini“ sem er neðst vinstra megin

3. Smelltu á ökuskírteinið

4. Veldu "Add to wallet"

Á Mínum síðum Ísland.is – athugaðu að þá þarftu að vera með annað tæki við höndina þar sem QR kóðinn birtist.

1. Skráðu þig inn á Mínar síður Ísland.is með rafrænum skilríkjum

2. Smelltu á Skírteini sem er vinstra megin á síðunni

3. Smelltu á ökuskírteinið og veldu "Senda í síma"

4. Skannaðu QR kóðann með myndavélinni í símanum sem þú vilt setja skírteinið upp á og smelltu á hlekkinn sem birtist

5. Veldu "Add to wallet"

Þú nálgast skírteinið í Apple Wallet.

Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?

merki

Staf­rænt Ísland

Ertu með ábendingu eða spurningu?

Netspjall

Sími: