Á sjúkrahúsi, innlögn
Á innskriftarmiðstöðvum og ýmsum deildum sjúkrahúsa fá þeir sem kallaðir eru inn til aðgerða almennar upplýsingar og fræðslu.
Biðlistar og innritun
Þegar ljóst er að einstaklingur þarf að leggjast inn á sjúkrahús eða heilbrigðisstofnun vegna meðferðar eða aðgerðar er hann settur á biðlista á viðkomandi deild, nema um bráðainnlögn sé að ræða.
Forgangsröðun sjúklinga vegna meðferðar byggist fyrst og fremst á læknisfræðilegum ákvörðunum og eftir atvikum öðrum faglegum forsendum.