Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Vöktun einstaklinga á lóðum eða húseignum og persónuverndarlög

Persónuverndarlögin og þær reglur sem settar hafa verið sem stoð í þeim gilda meðal annars um vöktun í sameign fjöleignarhúsa eða á sameiginlegri lóð fólks.

Einstaklingum er almennt heimilt að setja upp eftirlitsmyndavélar til að vakta lóðir sínar og húseignir en þeir þurfa að fara að framangreindum reglum við þá vöktun.

Meðal annars þarf að gæta þess sérstaklega að sjónarsvið eftirlitsmyndavélar fari ekki út fyrir yfirráðasvæði viðkomandi einstaklings, eins og til dæmis inn á lóðir annarra, sameign eða svæði á almannafæri.

Almennt er vöktun með leynd óheimil af hálfu einstaklinga.

Almennt gilda persónuverndarlögin ekki um meðferð einstaklings á persónuupplýsingum er varða einkahagi hans eða fjölskyldu hans eða er einvörðungu ætlaður til persónulegra nota.

Eftirlitsmyndavélar og það efni sem safnast með notkun þeirra fellur að jafnaði undir þessa skilgreiningu. Athuga verður þó að ef að vöktun fer fram á almannafæri (svo sem fyrir utan lóðamarka einkalóðar) þá eiga ákvæði persónuverndarlaganna við. Þarf þá sá sem ber ábyrgð á vöktuninni því að gæta að því að hún samrýmist ákvæðum laganna, sem og reglum sem settir hafa verið samkvæmt þeim, að öllu leyti

  • Tilgangur vöktunar verður að vera skýr, málefnalegur og lögmætur, til dæmis að koma í veg fyrir þjófnað eða að tryggja öryggi manna og eigna.

  • Gæta þarf meðalhófs og ekki má ganga lengra heldur en þörf krefur til að forðast óþarfa íhlutun í einkalíf þeirra sem sæta vöktuninni.

  • Nauðsynlegt er að fræða þá sem eru á vöktuðum svæðum um vöktunina. Einnig þarf að gera viðvart um vöktunina með merki eða á annan áberandi hátt.

  • Myndefni skal aðeins skoða ef sérstakt tilefni er til þess og bara af þeim sem hafa heimild til þess.

  • Ekki má geyma myndefni lengur en í 30 daga nema í sérstökum tilvikum, t.d. með heimild í lögum.

  • Þegar eftirlitsmyndavélar eru nettengdar þarf að tryggja að óviðkomandi hafi ekki aðgang að myndefni þeirra.

  • Opinber birting á myndefni, t.d. á Netinu, er óheimil nema með samþykki þeirra sem eru á upptökunni. Það má alltaf afhenda lögreglu myndefni.

  • Sá sem er vaktaður á rétt á að skoða gögnin, t.d. upptökur sem verða til um hann, nema hagsmunir annarra vegi þyngra.

  • Gæta þarf þess að sjónsvip eftirlitsmyndavélar fari ekki út fyrir lóðamörk

  • Vöktun með leynd er óheimil

Persónuvernd

Hafa samband

postur@personuvernd.is

Sími: 510 9600

Afgreiðslu­tími

Virka daga frá 9 til 12 og 13 til 15

Símatími lögfræðinga er alla fimmtudaga frá 9 til 12

Stað­setning

Laugavegur 166, 4. hæð

105 Reykjavík, Ísland

Kennitala: 560800-2820