Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Vinnsluskrá um vinnslu persónuupplýsinga

Nánast öllum sem vinna með persónuupplýsingar er skylt að halda svokallaða vinnsluskrá yfir vinnslustarfsemina, en hún er mikilvægt tæki til að uppfylla ábyrgðarskylduna.

Fyrirtæki og stofnanir sem hafa færri en 250 starfsmenn eru undanþegin skyldunni til að halda vinnsluskrár að því er varðar ákveðnar vinnslur.

  • Undanþágan er aftur á móti mjög þröng og því er sjaldgæft að hún eigi við að öllu leyti.

Meginreglan er því sú að fyrirtæki og stofnanir með starfsmenn undir 250 er skylt að halda vinnsluskrá ef vinnslan:

  • er líkleg til að leiða af sér áhættu fyrir réttindi og frelsi skráðra einstaklinga,

  • er ekki tilfallandi, eða

  • tekur til viðkvæmra persónuupplýsinga eða upplýsinga er varða sakfellingar í refsimálum og refsiverð brot

Persónuvernd

Hafa samband

postur@personuvernd.is

Sími: 510 9600

Afgreiðslu­tími

Virka daga frá 9 til 12 og 13 til 15

Símatími lögfræðinga er alla fimmtudaga frá 9 til 12

Stað­setning

Laugavegur 166, 4. hæð

105 Reykjavík, Ísland

Kennitala: 560800-2820