Hafskipulag
Tillaga Hafrannsóknastofnunar að eldissvæðum vegna fiskeldis í Arnarfirði
15. september 2020
Skipulagsstofnun hefur veitt Hafrannsóknastofnun umsögn um tillögu að eldissvæðum vegna fiskeldis í Arnarfirði. Skipulagsstofnun er lögbundinn umsagnaraðili þegar Hafrannsóknastofnun tekur ákvörðun um afmörkun eldissvæða samkvæmt 4. gr. a laga nr. 71/2008 um fiskeldi.
Ákvörðun um afmörkun eldissvæða
Með breytingum á lögum um fiskeldi sem tóku gildi árið 2019 er kveðið á um að Hafrannsóknastofnun ákveði eldissvæði í sjó. Ákvörðun stofnunarinnar er tekin á grundvelli burðarþols og bestu heildarnýtingar mögulegra eldissvæða en einnig skal taka tillit til annarrar starfsemi á svæðinu og fyrirliggjandi umsókna um fiskeldi. Jafnframt skal taka tillit til strandsvæðisskipulags við ákvörðun um eldissvæði, ef það liggur fyrir. Ákvörðun um afmörkun eldissvæða er forsenda þess að sjávarútvegsráðherra geti úthlutað svæðum til fiskeldis í sjó. Má því segja að ákvörðunin ígildi afmörkun lóða fyrir fiskeldi.
Tengsl við gerð strandsvæðisskipulags
Skipulagsstofnun vinnur nú fyrir hönd svæðisráðs að gerð strandsvæðisskipulags á Vestfjörðum. Í strandsvæðisskipulagi skal móta stefnu og ákvæði um ráðstöfun alls þess svæðis sem strandsvæðisskipulagið nær til. Þar er tekin afstaða til nýtingar og verndar fjarða og flóa og til samspils ólíkrar nýtingar. Það getur meðal annars varðað orkuvinnslu, mannvirkjagerð, fiskeldi, efnistöku, samgöngur, vernd, útivist og ferðaþjónustu. Í skipulagsvinnunni er því horft heildstætt á margvíslega hagsmuni og sjónarmið sem vega þarf saman við ákvörðun um framtíðarnýtingu viðkomandi fjarða og flóa. Strandsvæðisskipulag skapar þannig umgjörð um starfsemi og vernd á skipulagssvæðinu í heild.
Kynning á tillögu Hafrannsóknastofnunar
Ef strandsvæðisskipulag liggur ekki fyrir, líkt og á við í þessu tilviki, ber Skipulagsstofnun að birta tillögu Hafrannsóknastofnunar opinberlega og gefa kost á að skila inn athugasemdum áður en stofnunin veitir umsögn til Hafrannsóknastofnunar.
Skipulagsstofnun kynnti tillögu Hafrannsóknastofnunar að eldissvæðum vegna fiskeldis í Arnarfirði í júlí sl. Alls bárust sextán athugasemdir við tillöguna.
Umsögn Skipulagsstofnunar um tillögu Hafrannsóknastofnunar byggir, auk framangreindra athugasemda, á gögnum úr yfirstandandi vinnu við gerð strandsvæðisskipulags á Vestfjörðum og mati á umhverfisáhrifum fiskeldis, einkum með tilliti til mögulegs ósamræmis við aðra nýtingu eða verndarhagsmuni í Arnarfirði.