Fara beint í efnið

Hafskipulag

Kynningarfundur um strandsvæðisskipulag fyrir Vestfirði og Austfirði

5. ágúst 2022

Skipulagsstofnun heldur fund um tillögur að strandsvæðisskipulagi fyrir Vestfirði og Austfirði, þriðjudaginn 9. ágúst klukkan 13.30. Fundurinn fer fram í húsakynnum Skipulagsstofnunar við Borgartún 7B og er öllum opinn.

trilla-a-reydarfirdi

Einnig verður boðið upp á streymi fyrir fundargesti sem eiga ekki heimangengt. Smelltu hér fyrir aðgang að streymi.

Þau sem fylgjast með streymi geta komið á framfæri spurningum til frummælenda í gegnum vefinn. Til að gera það þarf að fara inn á www.slido.com og setja kóða viðburðarins hafskipulag efst á vefsíðunni.

Á síðustu árum hefur farið fram umfangsmikil vinna við gerð strandsvæðisskipulags fyrir Vestfirði og Austfirði. Þessi vinna hefur falið í sér nýmæli í skipulagsgerð hérlendis, þar sem skipulag hefur hingað til einskorðast við land, en hefur nú færst út á firði og flóa. Í byrjun sumars 2022 voru kynntar tillögur að strandssvæðisskipulagi Austfjarða og Vestfjarða sem eru til kynningar og umsagnar fram í september.

Skipulagstillögurnar fjalla í stórum dráttum um að halda jafnvægi milli nýtingar og verndar. Við mótun þeirra hefur meðal annars verið horft til fyrirliggjandi ákvarðana um leyfisskylda starfsemi og verndarákvæða á svæðunum og aðiliggjandi umhverfi. Markmiðið er að tryggja heildarsýn og sjálfbæra nýtingu og draga úr hagsmunaárekstrum.

Í skipulagstillögunum er að finna mikilvæg nýmæli, svo sem skilgreind viðmið fyrir öruggar siglingaleiðir sem mótuð voru í góðri samvinnu við Vegagerðina, Landhelgisgæsluna, Samgöngustofu, hafnarstjórnir og skipstjórnarmenn. Önnur nýmæli sem vert er að minnast á er varðveisla stórra náttúrusvæða, til dæmis er lagt til að varðveita Jökulfirði og Loðmundarfjörð ásamt Víkum sem kyrrlát óbyggðasvæði.

Leiðarljós beggja skipulagstillagnanna er sjálfbær þróun, viðnámsþróttur gagnvart samfélags- og umhverfisbreytingum, lífsgæði og samkeppnishæfni. Í skipulagstillögunum er lögð áhersla á umhverfisvöktun og að ávallt liggi fyrir bestu upplýsingar um stöðu vistkerfa og gæði sjávar á strandsvæðunum, til að tryggja sjálfbæra nýtingu þeirra.

Skipulagstillögurnar og umhverfismat þeirra má nálgast á www.hafskipulag.is. Frestur til að skila inn athugasemdum um skipulagstillögurnar er til og með 15. september 2022.