Forsetakosningar 2024
Norðurland eystra: Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar á stofnunum
28. maí 2024
Tímasetningar vegna atkvæðagreiðslu utan kjörfundar vegna forsetakosninga þann 1. júní 2024 á heilbrigðis- og öldrunarstofnunum og stofnunum fyrir fatlað fólk.
Akureyri og nágrenni: Hjúkrunarheimilið Lögmannshlíð, miðvikudaginn 22. maí, frá kl. 13:00 Öldrunarheimilið Hlíð, fimmtudaginn 23. maí, frá kl. 13:00 Kristnesspítali, þriðjudaginn 28. maí, frá kl. 13:00 Sjúkrahúsið á Akureyri, miðvikudaginn 29. maí, frá kl. 13:00
Hafi sjúklingi á Sjúkrahúsinu á Akureyri verið ómögulegt að greiða atkvæði á ofangreindum tíma, gefst honum kostur á að greiða atkvæði á stofnuninni á kjördag, 1. júní, frá klukkan 12:00 til 12:30.
Húsavík: Dvalarheimilið Hvammur, fimmtudaginn 23. maí, kl. 10:00-11:30 Heilbrigðisstofnun Norðurlands, þriðjudaginn 28. maí, frá kl. 13:00
Þórshöfn: Dvalarheimilið Naust, þriðjudaginn 28. maí, frá kl. 14:15
Siglufjörður: Heilbrigðisstofnun Norðurlands, mánudaginn 27. maí frá kl. 13:00
Ólafsfjörður: Hornbrekka heimili aldraðra, miðvikudaginn 22. maí, frá kl. 13:00
Dalvík: Dvalarheimilið Dalbær, miðvikudaginn 29. maí, frá kl. 13:00
Atkvæðagreiðslan er einungis ætluð þeim sem dvelja á viðkomandi stofnunum.