Fara beint í efnið

Fasteignafélagið Þórkatla

Þórkatla hefur samþykkt 95% þeirra umsókna sem bárust í mars

30. apríl 2024

Stjórn Þórkötlu hefur samþykkt kaup á 510 fasteignum í Grindavík að andvirði um 40 milljarða króna.

Grindavik yfirlitsmynd

Stjórn Þórkötlu hefur samþykkt kaup á 510 fasteignum í Grindavík að andvirði um
40 milljarða króna. Þar með er búið að samþykkja um 95% þeirra umsókna sem
bárust í mars og ekki kalla á sérstaka meðferð af hálfu félagsins.
Eins og fram hefur komið kláruðust samningar við lánveitendur húsnæðislána í
bænum ekki fyrr en þann 21. apríl, eða fyrir rúmri viku síðan. Samningar þessir voru
forsenda fyrir því að félagið gat hafist handa við kaup á eignum með áhvílandi
lánum.
Í þessari viku hefur félagið gengið frá tæplega 300 kaupsamningum og sent til
seljenda. Andvirði þessara samninga er um 26 milljarðar króna. Í næstu viku verður
byrjað á umsóknum sem bárust félaginu á fyrri helmingi aprílmánaðar sem eru
samtals 121.
 
Nokkur hluti umsókna hefur kallað á sérstaka skoðun af hálfu félagsins. Um er að
ræða tilfelli þar sem brunabótamat hefur hækkað umtalsvert eða skráðum fermetrum
fjölgað frá 10. nóvember síðastliðnum. Þá fór fram sérstök skoðun á umsóknum þar
sem fyrir lágu nýlegir kaupsamningar þar sem kaupverð er umtalsvert lægra en
brunabótamat eignarinnar. Félagið mun einnig gera sérstaka úttekt á þeim húsum
þar sem ekki liggur fyrir lokaúttekt byggingarfulltrúa.
 
Félaginu berst mikið af fyrirspurnum og erindum frá Grindvíkingum og leitast er við
að svara þessum erindum en vegna mikils fjölda getur verið nokkur töf á svörum.
Félagið beinir því til Grindvíkinga og annarra að fylgjast með fréttum og
gagnlegum upplýsingum á vef félagsins á island.is.
 
„Ég er ánægður með framgang mála og það sem við höfum áorkað síðustu vikur.“
segir Örn Viðar Skúlason, framkvæmdastjóri Þórkötlu. „Við höfum skilning á því að
sá hópur sem hefur enn ekki fengið úrlausn sinna mála sé óþolinmóður en miðað við
hversu vel hefur gengið að undanförnu erum við bjartsýn á framhaldið.
Það er okkur afar mikilvægt að Grindvíkingar fái sín mál á hreint sem fyrst og ég
fullyrði að eru allir sem að verkefninu koma eru að leggja sig fram um að hraða öllu
eins og hægt er.“