Fasteignafélagið Þórkatla
Hollvinasamningar nú valkostur fyrir Grindvíkinga
19. nóvember 2024
Nú geta þeir sem hafa selt Þórkötlu hús sín í Grindavík gert samning um afnot af húsinu, svo kallaðan hollvinasamning.
Frá og með deginum í dag geta þeir sem selt hafa Þórkötlu hús sín í Grindavík sótt um að gera samning um afnot af húsinu, svokallaðan hollvinasamning. Hollvinasamningur byggir á samstarfi Þórkötlu við seljendur húsa í Grindavík hvað varðar umhirðu, minniháttar viðhald og almennt eftirlit með eignunum. Forsenda þess að hægt sé að gera hollvinasamning um húsnæði er að öruggt sé talið að vera í eigninni og á lóðinni í kring.
Með því að gera hollvinasamning ákveður “hollvinur” að fá aðgang að húsinu sem Þórkatla hefur keypt af þeim. Hollvinur hefur þá heimild til þess að nota húsið innan þeirra marka sem koma fram í samningnum en meðal þess er heimild til að geyma lausafé í eigninni og sinna viðhaldi og umhirðu eftir hentugleika. Þannig geta seljendur viðhaldið tengslum sínum við húsið og í raun “gætt þess”. Meðan samningurinn er í gildi er því gengið út frá því að hollvinur heimsæki eignina og sinnir Þórkatla því ekki hefðbundnu eftirliti á meðan, nema hollvinur óski eftir því sérstaklega. Óheimilt að gista eða dvelja í fasteigninni næturlangt og ekki er heimilt að hafa þar fasta búsetu.
Kostnaður við hollvinasamning er tvíþættur. Annars vegar borgar hollvinur mánaðarlegan kostnað af rafmagni og hita á fasteigninni. Hins vegar greiðir hollvinur 30.000 kr. umsýslugjald þegar samningur er gerður.
Hægt er að sækja um að gera hollvinasamning hér.
952 umsóknir um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík
Nú hafa 952 umsóknir um kaup á íbúðarhúsnæði borist Fasteignafélaginu Þórkötlu. Alls hafa 914 umsóknir verið samþykktar og þar af eru 46 umsóknir þar sem félagið féllst á að tímabundnar aðstæður hafi skýrt skráningu á lögheimili annars staðar en í hinni seldu eign. Þegar hefur verið gengið frá 907 kaupsamningnum. Þá hefur afhending farið fram í 823 tilvikum og 785 afsöl verið undirrituð.
Heildarfjárfesting félagsins í þeim 907 eignum sem gengið hefur verið frá til þessa eru r 69,5 milljarðar króna. Þar ef eru kaupsamnings- og afsalsgreiðslur um 48,3 ma. kr. og yfirtekin húsnæðislán um 21,2 ma. kr.