Fara beint í efnið

Fasteignafélagið Þórkatla

Góður gangur hjá Fasteignafélaginu Þórkötlu

8. maí 2024

Nú hafa 766 umsóknir borist Fasteignafélaginu Þórkötlu og er meirihluti þeirra þegar búinn að fá samþykki.

Loftmynd Grindavík

Nú hafa 766 umsóknir borist Fasteignafélaginu Þórkötlu og er meirihluti þeirra þegar búinn að fá samþykki. Búið er að afgreiða allar umsóknir sem bárust í mars og ekki kölluðu á sérstaka skoðun. Alls eru það 528 umsóknir. Enn er unnið í svokölluðum frávika umsóknum sem bárust í mars. Þær snúa meðal annars að breytingum á fermetra fjölda, frávikum frá lögheimili í eigninni, húsum í byggingu, altjónshúsum og dánarbúum. Félagið mun á næstu dögum hefja úrvinnslu þeirra 130 umsókna sem bárust á fyrri hluta apríl mánaðar.

Þórkatla hefur þegar boðið eigendum um 415 húseigna í Grindavík kaupsamning til undirritunar eða rúmum 55% allra umsækjenda. Fyrir liggja 380 þinglýstir kaupsamningar að kaupverði um 30 milljarðar króna og hefur félagið greitt kaupsamningsgreiðslu í 358 viðskiptum að upphæð 17,5 milljarðar króna og yfirtekið lán frá 16 lánastofnunum að upphæð um 9 milljarðar króna. Þórkatla er nú að gera á bilinu 30 – 40 kaupsamninga á dag og stefnir að því að klára kaupsamning við alla þá 528 aðila sem sóttu um í mars í næstu viku.

Ýmis mál hafa flækt frágang nokkurra kaupssamninga svo sem þegar um er að ræða tryggingarbréf og veð frá einkaaðilum, kvaðir á húsum sem standa á lóðum í einkaeigu, útrunnin rafræn skilríki og ýmislegt annað. Nokkrir aðilar hafa kosið að undirrita ekki kaupsamning sem þeim barst frá Þórkötlu. Í slíkum tilvikum stendur fólki til boða að fá sendan nýjan samning þegar umsóknir sem bárust í apríl hafa verið afgreiddar.

Félagið undirbýr nú viðtökur á fyrstu eignunum en það verður gert með sérstökum skilafundi með seljanda og úttektaraðila félagins. Nokkrir seljendur hafa óskað eftir seinkun á fyrirhuguðum afhendingardegi og hefur félagið tekið vel í slíkar beiðnir seljenda. Slíkt getur kallað á tilfærslu á afsalsdegi og í þeim tilfellum er þörf á skriflegum viðauka við kaupsamning. Haft verður samband við seljendur varðandi útfærslu á þessu.

„Heilt á litið er ég mjög ánægður með framgang mála hjá okkur núna. Það að hafa gert vel á fimmta hundrað kaupsamninga á síðustu vikum þýðir að sambærilegur fjöldi fjölskyldna í Grindavík hefur fengið úrlausn sinna mála. Það tók okkur nokkurn tíma að ná tökum á þessu flókna verkefni en þetta er allt á góðri leið, enda frábær hópur sem stendur á bak við þetta verkefni þvert á stjórnkerfið. Við höfum átt nokkuð erfitt með að sinna öllum beinum fyrirspurnum frá seljendum nógu vel að undanförnu en höfum nú fengið kröftugan liðstyrk inn í þau mál sem ég á von á að skili sér strax á næstu dögum í betra viðbragði við fyrirspurnum.“ segir Örn Viðar Skúlason framkvæmdastjóri Fasteignafélagsins Þórkötlu.