Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Tímabundinn innflutningur ökutækis á erlendum númerum

Heimilt er að flytja tímabundið til landsins ökutæki á erlendum númerum. Í ákveðnum tilvikum getur þú fengið innflutningsgjöld lækkuð eða felld niður að fullu.

Ökutækið má vera að hámarki 12 mánuði á Íslandi.

Skilyrði

Ökutæki einstaklinga

Tímabundinn innflutningur ökutækis til persónulegra nota (atvinna, nám, ferðalög) er tollfrjáls að vissum skilyrðum uppfylltum. Ökutækið má að hámarki vera á landinu í 12 mánaði, annars þarf að greiða innflutningsgjöld.

Með ökutæki er átt við skráningarskylt faratæki, til dæmis bifreið, bifhjól, tjaldvagn, fellihýsi og hjólhýsi. Sjá nánar um skráningarskyld ökutæki.

Sá sem flytur inn ökutækið

  • þarf að vera með fasta búsetu erlendis

  • má ekki vera með skráð lögheimili á Íslandi

  • skal dvelja hér á landi á meðan ökutækið er hér, þó er heimilt að dvelja erlendis í allt að 6 vikur á 12 mánaða tímabili.

Ökutækið

  • þarf að koma til landsins innan eins mánaðar frá komu innflytjanda

  • má ekki nota til fólks- eða vöruflutninga í atvinnuskyni

  • er til persónulegra nota fyrir innflytjanda og samferðamenn hans með fasta búsetu erlendis

Bílaleigubíll: Ef innflytjandi kemur með fólksbifreið sem hann leigir af bílaleigu, skráðri í öðru landi, er einungis heimilt að vera með ökutækið í 42 daga í hvert sinn og aldrei lengur en 183 daga á hverju 12 mánaða tímabili.

Ferli við innflutning ökutækis á erlendum númerum

Framlengd dvöl

Ef þú vilt framlengja dvöl ökutækis á Íslandi þarftu að láta Skattinn vita.

Hægt er að senda tölvupóst á E9@skatturinn.is.

Ef þú ákveður að vera lengur en 12 mánuði þarf að greiða innflutningsgjöld af ökutækinu. Sjá leiðbeiningar um innflutning ökutækis með búslóð eða innflutning á nýju eða notuðu ökutæki.

Lögheimilisskráning á Íslandi

Ef þú skráir lögheimili á Íslandi innan 12 mánaða frá komu til landsins þarf að:

  • tollafgreiða ökutækið og greiða innflutningsgjöld.

  • eða flytja ökutækið úr landi áður en lögheimilisskráning á sér stað.

Ferli að lokinni dvöl á Íslandi

Innan 12 mánaða þarf annaðhvort að:

Þjónustuaðili

Skatt­urinn