Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnastjóri á röntgendeild - Geislafræðingur HSN Húsavík

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

22.04.2026

Umsóknarfrestur

04.05.2026

Verkefnastjóri á röntgendeild - Geislafræðingur HSN Húsavík

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) óskar eftir að ráða metnaðarfullan geislafræðing til að taka að sér hlutverk verkefnastjóra á röntgendeild á Húsavík. Viðkomandi starfar í dagvinnu og á bakvöktum um helgar. Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.

Leitað er að einstakling sem er sjálfstæður í starfi, sýnir frumkvæði og hefur áhuga á að taka þátt í áframhaldandi þróun myndgreiningarþjónustu HSN.

Á Húsavík er heilsugæsla og einnig eru heilsugæslustöðvar á Þórshöfn, Raufarhöfn, Kópaskeri, Laugum og Mývatnssveit. Jafnframt er á Húsavík sjúkradeild og hjúkrunardeildir og einnig er þar starfrækt göngudeild sérfræðiþjónustu.

Hér má sjá kynningu á HSN í Þingeyjarsýslum. Þar sem þjónusta og gott starfsumhverfi koma saman

Hér má sjá upplýsingar um HSN í hnotskurn

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Daglegur rekstur og skipulag verkefna á röntgendeild

  • Framkvæmd almennra myndgreiningarannsókna

  • Skráning í upplýsingakerfi stofnunar

  • Ábyrgð á verkferlum, gæðamálum og innleiðingu nýrra lausna

  • Þjálfun og leiðsögn starfsfólks. Þátttaka í kennslu

  • Þátttaka í stefnumótun og þróunarverkefnum deildarinnar

  • Önnur tilfallandi verkefni skv. beiðni næsta yfirmanns

Hæfniskröfur

  • Íslenskt starfsleyfi geislafræðings

  • Starfsreynsla á röntgendeild æskileg

  • Reynsla í Verkefnastjórnun kostur

  • Jákvæðni og mjög góð samskipta- og samstarfshæfni

  • Frumkvæði, áhugi og metnaður til að ná árangri

  • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð

  • Góð íslensku- og/eða enskukunnátta

  • Hreint sakavottorð og gott orðspor

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag geislafræðinga hafa gert.

Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Með umsókn skal einnig fylgja afrit af starfsleyfi og prófskírteinum.

Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.

Við Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Húsavík starfar samhentur hópur starfsfólks sem leggur sitt að mörkum til að þjónusta samfélagið á sem bestan hátt. Vinnustaðurinn leggur áherslu á að vera vinalegur, styðja starfsfólk sitt og mæta því á fjölbreyttan hátt.

Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.

Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 04.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Áslaug Halldórsdóttir

yfirhjúkrunarfræðingur svæðis

Tölvupóstur: aslaug.halldorsdottir@hsn.is

Sími: 432 4840

Ásgeir Böðvarsson

yfirlæknir

Tölvupóstur: asgeir.bodvarsson@hsn.is

Sími: 432 4810

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnastjóri á röntgendeild - Geislafræðingur HSN Húsavík

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

22.04.2026

Umsóknarfrestur

04.05.2026