
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarstörf - Starfsfólk í eldhúsi á HSN Skagaströnd, Sæborg
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
21.04.2026
Umsóknarfrestur
04.05.2026
Sumarstörf - Starfsfólk í eldhúsi á HSN Skagaströnd, Sæborg
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Skagaströnd, Sæborg óskar eftir starfsfólki í eldhús í sumarafleysingar. Um er að ræða dagvinnu og vinnu aðra hverja helgi.
Hér má sjá upplýsingar um HSN í hnotskurn fyrir allar starfsstöðvar
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn eldhússtörf og eldamennska
Aðstoð við mat í matstofu
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
Frábær samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Hreint sakavottorð og gott orðspor
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélagið Samstaða hafa gert.
Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Með umsókn skal einnig fylgja afrit af prófskírteinum ef við á. Ekki er unnt að ráða fólk yngra en 18 ára.
Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.
Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 04.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Helga Margrét Jóhannesdóttir
yfirhjúkrunarfræðingur svæðis
Tölvupóstur: helga.margret.johannesdottir@hsn.is
Sími: 432 4100

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarstörf - Starfsfólk í eldhúsi á HSN Skagaströnd, Sæborg
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
21.04.2026
Umsóknarfrestur
04.05.2026