
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Starfsfólk í aðhlynningu og býtibúri Sæborg - HSN Skagaströnd
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
70-90%
Starf skráð
31.03.2026
Umsóknarfrestur
10.04.2026
Starfsfólk í aðhlynningu og býtibúri Sæborg - HSN Skagaströnd
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Skagaströnd, Sæborg óskar eftir metnaðarfullum, áreiðanlegum og þjónustulunduðum einstaklingi til starfa í aðhlynningu og í býtibúri. Um er að ræða vaktavinnu á heimili þar sem rík áhersla er lögð á hlýja, faglega og einstaklingsmiðaða þjónustu við íbúa. Ráðningarhlutfall er 70-90%. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.
VIð leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að vinna með fólki, hefur áhuga á fjölbreyttum verkefnum, ríka samskiptahæfni og vinnur vel bæði sjálfstætt og í teymi.
Hér má sjá upplýsingar um HSN í hnotskurn fyrir allar starfsstöðvar
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn aðhlynningarstörf og stuðningur við íbúa í samstarfi við fagaðila
Verkefni í býtibúri tengd undirbúningi og frágangi máltíða
Þátttaka í teymisvinnu
Almenn þrif
Umsjón og þrif á þvotti íbúa
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
Frábær samskiptahæfni, jákvæðni og þjónustulund
Reynsla úr sambærilegu starfi er kostur en ekki skilyrði
Frumkvæði, sveigjanleiki í starfi og sjálfstæð vinnubrögðum
Góð íslensku- eða enskukunnátta
Hreint sakavottorð og gott orðspor
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélagið Samstaða hafa gert.
Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Ekki er unnt að ráða fólk yngra en 18 ára.
Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.
Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.
Starfshlutfall er 70-90%
Umsóknarfrestur er til og með 10.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Helga Margrét Jóhannesdóttir
yfirhjúkrunarfræðingur svæðis
Tölvupóstur: helga.margret.johannesdottir@hsn.is
Sími: 432 4100

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Starfsfólk í aðhlynningu og býtibúri Sæborg - HSN Skagaströnd
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
70-90%
Starf skráð
31.03.2026
Umsóknarfrestur
10.04.2026