Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Fjársýslan

Upplýsingar um starf

Starf

Lögfræðingur á mannauðssvið Fjársýslunnar

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

25.03.2026

Umsóknarfrestur

09.04.2026

Lögfræðingur á mannauðssvið Fjársýslunnar

Viltu taka þátt í að bæta enn frekar umgjörð mannauðsmála ríkisins og hjálpa ríkisaðilum að bæta stjórnun mannauðsmála og taka réttar ákvarðanir.

Óskum eftir lausnamiðuðum og metnaðarfullum lögfræðingi í öflugt teymi sérfræðinga þar sem áhersla er lögð á fagleg vinnubrögð og vandaða þjónustu.

Dagleg verkefni eru fjölbreytt og krefjandi og spanna öll svið vinnumarkaðs- og mannauðsmála, svo sem lögfræðilegar umsagnir, ráðgjöf um framkvæmd kjarasamninga og starfsmannamál, miðlun upplýsinga, fræðsla og virk þátttaka í þróun og innleiðingu nýrra starfsaðferða. Lögfræðingurinn sem við leitum eftir þarf að hafa áhuga á vinnumarkaðsmálum og starfsumhverfi hins opinbera.

Mannauðssvið sinnir ráðgjöf við ríkisaðila á sviði kjara- og mannauðsmála. Undir þetta fellur m.a. túlkun kjarasamninga, laga og reglna ásamt ráðgjöf um ýmis mál sem snúa að stjórnun mannauðsmála og stuðningi við ríkisaðila á þessu sviði. Á mannauðssviði fer einnig fram launaafgreiðsla fyrir tæplega 200 ríkisaðila og um 21 þúsund starfsmenn ásamt þátttöku í þróun fjárhags- og mannauðskerfa ríkisins.

Fjársýslan er þjónustu- og þekkingarstofnun á sviði opinberra fjármála. Stofnunin veitir ríkisaðilum fjölbreytta þjónustu og ráðgjöf á sviði opinberra fjármála, mannauðsmála og innkaupa. Fjársýslan leggur áherslu á að skapa virði fyrir viðskiptavini og greiða leið fyrir bætta þjónustu ríkisins.

Upplýsingar um starfsemi Fjársýslunnar má finna á https://island.is/s/fjarsyslan.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ráðgjöf og stuðningur við ríkisaðila

  • Túlkun kjarasamninga, laga og reglna

  • Lögfræðileg greining og úrlausn stjórnsýsluerinda

  • Gerð leiðbeininga og verklagsreglna í samráði við skrifstofu kjara- og mannauðsmála í fjármála- og efnahagsráðuneytinu

  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Embættis- eða meistarapróf í lögfræði er skilyrði

  • Þekking og reynsla á opinberri stjórnsýslu, vinnurétti og kjaramálum

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum, frumkvæði og metnaður

  • Rík þjónustulund og samskiptahæfni

  • Góð almenn tölvuþekking

  • Mjög góð íslensku og enskukunnátta í ræðu og riti

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélag lögfræðinga hafa gert.

Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf (hvort tveggja á íslensku) þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda til að gegna starfinu.

Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni og geta umsóknir gilt í sex mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. reglur nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa.

Um 100% starf er að ræða og eru laun samkvæmt gildandi kjarasamningi milli fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélags lögfræðinga. Við ráðningu í starfið er farið eftir jafnréttisstefnu Fjársýslunnar.

Nánari upplýsingar veitir Kristín Guðmundsdóttir mannauðsstjóri (kristin.gudmundsdottir@fjs.is).

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 09.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Kristín Sigrún Guðmundsdóttir

Mannauðsstjóri

Tölvupóstur: kristin.gudmundsdottir@fjs.is

Þjónustuaðili

Fjársýslan

Upplýsingar um starf

Starf

Lögfræðingur á mannauðssvið Fjársýslunnar

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

25.03.2026

Umsóknarfrestur

09.04.2026