
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Heilbrigðisgagnafræðingur HSN, Sunnuhlíð Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
05.02.2026
Umsóknarfrestur
16.02.2026
Heilbrigðisgagnafræðingur HSN, Sunnuhlíð Akureyri
Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Akureyri óskar eftir að ráða heilbrigðisgagnafræðing tímabundið í eitt ár á heilsugæslustöðina í Sunnuhlíð. Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi. Leitað er að einstaklingi sem býr yfir góðri samskiptahæfni, sjálfstæðum vinnubrögðum og áhuga á gæðamálum og vinnslu heilbrigðisgagna.
Starfið er fjölbreytt og mikilvægur hluti af starfsemi heilsugæslunnar, þar sem heilbrigðisgagnafræðingur gegnir lykilhlutverki í öflun, úrvinnslu og skráningu gagna sem styðja við faglegt starf og ákvarðanatöku innan þjónustunnar.
Hjá HSN er lögð rík áhersla á vellíðan á vinnustað, heilsueflingu, teymisvinnu, styðjandi og fjölskylduvænt vinnuumhverfi.
Hér má sjá upplýsingar um verkefnið Heilsueflandi vinnustaður en heilsugæslan á Akureyri var fyrst allra heilsugæslustöðva að innleiða verkefnið.
Hér má sjá upplýsingar um teymisvinnu hjá HSN á Akureyri
Hér má sjá upplýsingar um HSN í hnotskurn fyrir allar starfsstöðvar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Skráning og meðferð upplýsinga í sjúkraskrárkerfi heilsugæslunnar
Upplýsingagjöf og leiðbeiningar til sjúklinga
Umsjón með ýmsum þáttum er varða varðveislu og meðferð sjúkraskráningar
Símasvörun og móttaka
Samskipti við aðra starfsmenn heilsugæslunnar og ýmis umsýsla og skráning gagna
Gegnir mikilvægu hlutverki í teymisvinnu innan heilsugæslunnar
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
Próf í heilbrigðisgagnafræði
Reynsla af störfum á heilsugæslu eða öðrum heilbrigðisstofnunum æskileg
Góð þekking á skjalavörslu og tölvuskráningu
Góð þekking á almennum tölvuforritum
Þekking á Sögu og sérhæfðum tölvuforritum í heilsugæslu
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Frábær samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki
Góð íslensku- og enskukunnátta
Hreint sakavottorð og gott orðspor
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kjölur hafa gert.
Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Með umsókn skal einnig fylgja afrit af prófskírteinum og starfsleyfi.
Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.
Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.02.2026
Nánari upplýsingar veitir
Sigríður Dagný Þrastardóttir
deildarstjóri ritara og heilbrigðisgagnafræðinga
Tölvupóstur: sigridur.dagny.thrastardottir@hsn.is
Sími: 432 4600
Ingibjörg Lára Símonardóttir
yfirhjúkrunarfræðingur svæðis
Tölvupóstur: inga.lara.simonardottir@hsn.is
Sími: 432 4642

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Heilbrigðisgagnafræðingur HSN, Sunnuhlíð Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
05.02.2026
Umsóknarfrestur
16.02.2026