Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarstörf - Iðjuþjálfi/iðjuþjálfanemi HSN Blönduósi

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

09.01.2026

Umsóknarfrestur

20.02.2026

Sumarstörf - Iðjuþjálfi/iðjuþjálfanemi HSN Blönduósi

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) auglýsir eftir iðjuþjálfa/iðjuþjálfanema í sumarafleysingar. Ráðningartími og starfshlutfall er samkvæmt samkomulagi.

Hér má sjá upplýsingar um HSN á Blönduósi: Fjölbreytt starfsemi og hlýtt starfsumhverfi

Hér má sjá upplýsingar um HSN í hnotskurn fyrir allar starfsstöðvar

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Hvetur og styður skjólstæðinga til sjálfshjálpar og félagslegrar virkni með það að markmiði að auka lífsgæði

  • Annast endurhæfingu í samvinnu við sjúkraþjálfara og skipuleggur einstaklings- og hópameðferðir

  • Leggur fyrir möt og hannar einstaklingsáætlanir í samráði við skjólstæðinga. Tryggir að framvinda sé skráð og metin reglulega

  • Miðlar fræðslu til skjólstæðinga, aðstandenda og starfsfólks

  • Annast alla umsýslu hjálpartækja í samráði við yfirhjúkrunarfræðing

  • Er tengiliður skjólstæðinga við aðra þjónustuflokka s.s. sjúkraþjálfara, hjúkrunarfræðinga, lækna og félagsþjónustu

  • Hefur yfirsýn yfir þá þjónustu sem skjólstæðingar fá og/eða þarfnast

  • Tekur þátt í teymisvinnu og situr fundi sem varða skjólstæðinga

  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Fullgilt próf sem iðjuþjálfi og íslenskt starfsleyfi, staðfesting á námi fyrir nema

  • Frábær samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki

  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Hreint sakavottorð og gott orðspor

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Iðjuþjálfafélag Íslands hafa gert.

Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Með umsókn skal einnig fylgja afrit af starfsleyfi og prófskírteinum. Fyrir nema skal fylgja með staðfesting á námi.

Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.

Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.

HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.

Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.

Starfshlutfall er 50-100%

Umsóknarfrestur er til og með 20.02.2026

Nánari upplýsingar veitir

Helga Margrét Jóhannesdóttir

yfirhjúkrunarfræðingur svæðis

Tölvupóstur: helga.margret.johannesdottir@hsn.is

Sími: 432 4133

Viktoría Björk Erlendsdóttir

deildarstjóri

Tölvupóstur: viktoria.bjork.erlendsdottir@hsn.is

Sími: 432 4100

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarstörf - Iðjuþjálfi/iðjuþjálfanemi HSN Blönduósi

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

09.01.2026

Umsóknarfrestur

20.02.2026