Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur/hjúkrunarnemi á skurðlækningadeild

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

60-80%

Starf skráð

30.10.2024

Umsóknarfrestur

29.11.2024

Hjúkrunarfræðingur/hjúkrunarnemi á skurðlækningadeild

Laus er til umsóknar 80% tímabundin staða hjúkrunarfræðings á skurðlækningadeild. Einnig kemur til greina að ráða hjúkrunarnema sem lokið hefur þremur námsárum. Um er að ræða vaktavinnu og er staðan laus nú þegari eða eftir samkomulagi. Unnið er á þrískiptum vöktum í fjölbreyttu starfumhverfi. Starfið býður upp á tækifæri til að þróa með sér mikla faglega þekkingu og hæfni í sjálfstæðum vinnubrögðum.

Ef þú hefur áhuga á að prófa hjúkrun á skurðlækningadeild þá er þetta tækifæri fyrir þig

Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun. Frábært tækifæri á góðum vinnustað þar sem starfsumhverfið er fjölbreytt, spennandi og krefjandi.

Næsti yfirmaður er Hilda Hólm Árnadóttir, deildarstjóri skurðlækningadeildar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum

  • Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar.

Hæfniskröfur

  • Umsækjandi skal hafa lokið hjúkrunarfræðinámi frá viðurkenndri menntastofnun og hafa Íslenskt starfsleyfi sem hjúkrunarfræðingur (gildir ekki fyrir hjúkrunarnema)

  • Faglegur metnaður í starfi

  • Áhugi á að starfa í metnaðarfullu og lærdómsríku umhverfi

  • Þekking og reynsla af hjúkrun á sviði skurðlækninga er kostur

  • Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar

  • Lögð er áhersla á frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð

  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Starfshlutfall er 60-80%

Umsóknarfrestur er til og með 29.11.2024

Nánari upplýsingar veitir

Hilda Hólm Árnadóttir, ha0413@sak.is

Sími: 4630100

Bryndís María Davíðsdóttir, bryndisd@sak.is

Sími: 4630100

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur/hjúkrunarnemi á skurðlækningadeild

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

60-80%

Starf skráð

30.10.2024

Umsóknarfrestur

29.11.2024