Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar í starfsnámi - Spennandi störf á lungnadeild í Fossvogi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
20-100%
Starf skráð
01.11.2024
Umsóknarfrestur
13.11.2024
Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar í starfsnámi - Spennandi störf á lungnadeild í Fossvogi
Ertu góður liðsmaður og langar þig að starfa í starfsumhverfi þar sem ríkir góður starfsandi og áhersla er á samvinnu, virðingu og jákvætt og hvetjandi starfsumhverfi?
Við sækjumst eftir sjúkraliðum og sjúkraliðanemum í starfsnámi í okkar góða lið. Við sækjumst bæði eftir reynslumiklum sem og nýútskrifuðum. Starfshlutfall og vinnufyrirkomulag er samkomulagsatriði og eru störfin laus frá 1. desember 2024 eða eftir samkomulagi.
Lungnadeild er bráðalegudeild með hágæslurýmum og eina sérhæfða lungnadeildin á landinu. Þjálfun og fræðsla er í fyrirrúmi á deildinni og mörg námstækifæri. Á deildinni starfa um 70 einstaklingar í þverfaglegu teymi. Starfsandi á deildinni er mjög góður og tekið vel á móti nýju samstarfsfólki. Við leggjum okkur fram við að þjónustan við skjólstæðinga okkar sé til fyrirmyndar, öryggi þeirra sé tryggt og að þeim sé sýnd hlýja og umhyggja.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hjúkrun einstaklinga í samvinnu við aðra fagaðila
Þátttaka í fjölskylduhjúkrun
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi sjúkraliða/ vottun um launað starfsnám
Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfni
Faglegur metnaður og áhugi á að öðlast færni í hjúkrun sjúklinga með lungnasjúkdóma og annarra sem á deildinni dvelja
Sjálfstæði í vinnubrögðum
Hæfni og geta til að vinna í teymi
Íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sjúkraliði, hjúkrun
Tungumálahæfni: íslenska 4/5,
Starfshlutfall er 20-100%
Umsóknarfrestur er til og með 13.11.2024
Nánari upplýsingar veitir
Guðrún Árný Guðmundsdóttir, gudrgudm@landspitali.is
Sími: 824 6019
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar í starfsnámi - Spennandi störf á lungnadeild í Fossvogi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
20-100%
Starf skráð
01.11.2024
Umsóknarfrestur
13.11.2024