Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskólinn á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Lektor í leikskólafræði

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

17.10.2024

Umsóknarfrestur

18.11.2024

Lektor í leikskólafræði

Háskólinn á Akureyri auglýsir lausa 100% stöðu lektors í leikskólafræði við Kennaradeild Hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri. Helstu verkefni eru kennsla á bakkalár- og meistarastigi og rannsóknir á sviði leikskólafræði auk þess að taka virkan þátt í stjórnsýslu innan deildarinnar, akademísku samfélagi og umhverfi háskólans.

Starfsstöð er á Akureyri. Næsti yfirmaður er deildarforseti Kennaradeildar. Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf 1. ágúst 2025. Ráðningartími er tímabundinn til fimm ára en viðkomandi getur óskað eftir ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum samkvæmt reglum nr. 726/2023 um ótímabundna ráðningu akademísks starfsfólks við Háskólann á Akureyri. Framgangur í stöðu dósents eða prófessors kemur til greina við ráðningu hafi umsækjandi hæfi til þess að mati dómnefndar.

Við Kennaradeild HA er boðið upp á nám í kennarafræði (B.Ed.), meistaranám til kennsluréttinda (M.Ed. og MT) og rannsóknartengt meistaranám (MA) í menntavísindum. Einnig er boðið upp á diplómanám í leikskólafræði og menntavísindum. Kennaradeild er sem stendur í umsóknarferli um heimild til að bjóða upp á doktorsnám, sem mun styrkja enn frekar rannsóknir og fræðastarf deildarinnar. Nemendur við deildina eru um 450 og starfsfólk 20.

Helstu verkefni og ábyrgð

Leitað er eftir háskólakennara sem hefur þekkingu á menntunarfræði og getur kennt námskeið í leikskólafræði og stundað rannsóknir á því fræðasviði. Mikilvægt er að kennari sem ráðinn verður taki virkan þátt í daglegu akademísku samfélagi háskólans og nærsamfélags á Norðurlandi.

Hæfniskröfur

  • Umsækjandi skal hafa þekkingu og reynslu í samræmi við alþjóðleg viðmið fyrir viðkomandi starfsheiti á fræðasviðinu, staðfest með áliti dómnefndar eða með doktorsprófi frá viðurkenndum háskóla.

  • Æskilegt er að umsækjandi hafi leyfisbréf til kennslu og reynslu af kennslu í leikskóla.

  • Kennslureynsla á háskólastigi telst æskileg og birtingar á alþjóðlegum, ritrýndum vettvangi eru æskilegar.

  • Krafist er góðrar hæfni í mannlegum samskiptum og skipulagshæfni.

  • Við mat á umsóknum er tekið mið af hversu vel viðkomandi uppfyllir þarfir Kennaradeildar.

  • Gott vald á íslensku og ensku er nauðsynlegt.

  • Umsækjandi sem talar ekki íslensku nú þegar þarf að öðlast vald á tungumálinu á starfstímanum í samræmi við málstefnu háskólans.

Umsókn skal fylgja:

  • Greinargóð skýrsla um náms- og starfsferil, fræðistörf og kennslureynslu.

  • Staðfest afrit af öllum viðeigandi prófskírteinum á íslensku eða ensku.

  • Greinargerð um fyrirhugaðar rannsóknaráherslur og kennslusvið ef til ráðningar kæmi.

  • Umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf umsækjanda eftir því sem við á.

  • Tilnefna skal þrjá meðmælendur, æskilegt er að einn þeirra sé næsti yfirmaður í núverandi starfi eða fyrra starfi umsækjanda.

  • Þær fræðilegu ritsmíðar sem umsækjandi telur sín bestu verk (allt að þremur ritum). Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skal umsækjandi gera grein fyrir framlagi sínu til verksins.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.

Meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðning í starfið er í samræmi við ákvæði laga um háskóla nr. 63/2006, laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, reglur nr. 694/2022 fyrir Háskólann á Akureyri og reglur nr. 724/2023 um nýráðningar akademísks starfsfólks við Háskólann á Akureyri. Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu í starfið hefur verið tekin.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 18.11.2024

Nánari upplýsingar veitir

Guðmundur Engilbertsson, ge@unak.is

Thomas Barry, tom@unak.is

Þjónustuaðili

Háskólinn á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Lektor í leikskólafræði

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

17.10.2024

Umsóknarfrestur

18.11.2024