Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliði á gjörgæsludeild Sjúkrahússins á Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

17.10.2024

Umsóknarfrestur

31.10.2024

Sjúkraliði á gjörgæsludeild Sjúkrahússins á Akureyri

Ertu góður liðsmaður og langar þig að starfa í fjölbreyttu og hvetjandi starfsumhverfi?

Okkur vantar sjúkraliða í okkar góða lið á gjörgæsludeild og sækjum eftir bæði reynsluboltum sem og nýútskrifuðum. Á gjörgæsludeild eru góð tækifæri til að þróa með sér mikla þekkingu og hæfni í sjálfstæðum vinnubrögðum í lærdómsríku umhverfi.

Um er að ræða 80-100% stöðu í vaktavinnu í fjölbreyttu starfsumhverfi og er staðan laus nú þegar eða eftir nánara samkomulagi.

Næsti yfirmaður er Brynja Dröfn Tryggvadóttir deildarstjóri gjörgæsludeildar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum sjúkraliða samkvæmt lögum og reglugerðum

  • Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar

Hæfniskröfur

  • Sjúkraliði skal hafa lokið sjúkraliðanámi frá viðurkenndri menntastofnun og hafa gilt íslenskt starfsleyfi

  • Faglegur metnaður, frumkvæði og ábyrgð í starfi

  • Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar í samskiptum og samvinnu

  • Sjúkraliðanemum stendur einnig til boða að sækja um starfið án umræddra krafna um lokið nám og starfsleyfi

  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 31.10.2024

Nánari upplýsingar veitir

Brynja Dröfn Tryggvadóttir, brynjadr@sak.is

Sími: 463-0100

Helga Kristín Jónsdóttir, hkj0716@sak.is

Sími: 463-0100

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliði á gjörgæsludeild Sjúkrahússins á Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

17.10.2024

Umsóknarfrestur

31.10.2024