Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Lyfjatæknir hjá lyfjaþjónustu Sjúkrahússins á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
17.10.2024
Umsóknarfrestur
31.10.2024
Lyfjatæknir hjá lyfjaþjónustu Sjúkrahússins á Akureyri
Laus er til umsóknar staða lyfjatæknis við lyfjaþjónustu Sjúkrahússins á Akureyri. Um fasta stöðu er að ræða í fjölbreyttu og krefjandi starfsumhverfi þar sem verkefnin eru margbreytileg og veita svigrúm til að nýta nám og reynslu til fullnustu. Vinnutími er samkvæmt samkomulagi. Staðan er laus nú þegar eða eftir nánara samkomulagi.
Næsti yfirmaður er Jóna Valdís Ólafsdóttir, deildarstjóri lyfjaþjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Birgðastýring lyfja á lyfjaherbergjum á deildum SAk
Vörumóttaka og frágangur lyfja
Afgreiðsla pantana á deild og ráðgjöf til annarra heilbrigðisstarfsmanna
Þátttaka í þróun lyfjaþjónustu á klínískum deildum
Blöndun lyfja með smitgát bæði á deild og í lyfjaframleiðslu lyfjaþjónustu
Lyfjatiltekt og lyfjaskömmtun
Fylgni við gæðakerfi og þátttaka í þróun gæðavinnu
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
Lyfjatæknir með gilt starfsleyfi
Góð samstarfs- og samskiptahæfni, öflugur liðsmaður og jákvætt viðmót
Nákvæm, skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
Frumkvæði, þjónustulund og áhugi á að þroskast í starfi
Góð tölvukunnátta
Reynsla af störfum í lyfjaþjónustu sjúkrahúss æskileg
Reynsla af því að vinna með lyfjablandanir æskileg
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kjölur hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum og starfsleyfi. Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Sjúkrahúsið á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Sjúkrahúsið veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi. Áhersla er á virka þátttöku starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.10.2024
Nánari upplýsingar veitir
Jóna Valdís Ólafsdóttir, jvo0112@sak.is
Sími: 463-0100
Helga Kristín Jónsdóttir, hkj0716@sak.is
Sími: 463-0100
Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Lyfjatæknir hjá lyfjaþjónustu Sjúkrahússins á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
17.10.2024
Umsóknarfrestur
31.10.2024