Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Sýslu­mað­urinn á Vestur­landi

Upplýsingar um starf

Starf

Skrifstofumaður

Staðsetning

Vesturland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

17.10.2024

Umsóknarfrestur

28.10.2024

Skrifstofumaður

Laus er til umsóknar tímabundin staða skrifstofumanns, til eins árs, við embætti sýslumannsins á Vesturlandi. Dagleg starfsstöð er á aðalskrifstofu embættisins í Stykkishólmi.

Starfshlutfall er 100%

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið felst í umsjón með nauðungarsölumálum embættisins sem og almennri afgreiðslu og símsvörun. Þá sinnir starfsmaðurinn öðrum tilfallandi verkefnum, s.s. á sviði þinglýsinga, dánarbúa o.fl., sem og stoðþjónustu við aðrar deildir embættisins. Í boði er áhugavert og fjölbreytt starf innan stofnunar í stöðugri þróun. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst.

Hæfniskröfur

  • Stúdentspróf (3. þrep íslenska hæfnirammans) eða reynsla í sambærilegu starfi

  • Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót, samvinnufærni og góð þjónustulund er skilyrði

  • Reynsla af skrifstofustörfum er kostur, svo og önnur reynsla sem nýtist í starfi

  • Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í starfi

  • Nákvæmni og ögun í vinnubrögðum

  • Mjög góð tölvukunnátta

  • Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Sýslumaðurinn á Vesturlandi er framsækin stjórnsýslu- og þjónustustofnun sem fer með framkvæmdarvald ríkisins innan umdæmis síns auk þess að sinna sérverkefnum á landsvísu; allsherjarskrá kaupmála og umsjón gjafsóknarmála.

Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá, prófskírteini ef við á og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið ásamt upplýsingum um meðmælendur, auk annarra atriða sem máli kunna að skipta.

Einstaklingar óháð kyni eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út með vísan til 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum, sbr. 2. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

Umsóknarfrestur er til og með 29. október 2024.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 28.10.2024

Nánari upplýsingar veitir

Berglind Lilja Þorbergsdóttir, berglindlilja@syslumenn.is

Þjónustuaðili

Sýslu­mað­urinn á Vestur­landi

Upplýsingar um starf

Starf

Skrifstofumaður

Staðsetning

Vesturland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

17.10.2024

Umsóknarfrestur

28.10.2024