Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður á taugalækningadeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

17.10.2024

Umsóknarfrestur

28.10.2024

Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður á taugalækningadeild

Við viljum ráða til starfa heilbrigðisritara/ skrifstofumann sem hefur áhuga á fjölbreyttu starfi í krefjandi þverfaglegu umhverfi á taugalækningadeild Landspítala í Fossvogi. Á taugalækningadeild starfar samhent teymi starfsfólks sem veitir fjölþætta heilbrigðisþjónustu allan sólarhringinn og mikil þverfagleg teymisvinna og fjölmörg tækifæri eru til að vaxa í starfi.

Leitum eftir metnaðarfullum einstaklingi sem er lausnamiðaður, þjónustulipur, með góða samskiptahæfni og sem á auðvelt með að vinna í teymi. Starfið er vaktavinna, vaktirnar eru frá kl. 8-16 eða 8-20 virka daga. Um helgar frá 8-16. Ráðið er í starfið frá 1. nóvember 2024 eða eftir samkomulagi.

Starfshlutfall er 50% með möguleika á hækkun í 100% eftir áramót.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn og sérhæfð ritarastörf á deild s.s. símsvörun, upplýsingagjöf, útvegun og frágangur gagna og gagnavinnsla í tölvukerfum Landspítala

  • Ábyrgð á daglegum viðfangsefnum deildar samkvæmt verklagi

  • Önnur tilfallandi verkefni í samráði við deildarstjóra

Hæfniskröfur

  • Heilbrigðisritaranám, stúdentspróf eða annað sambærilegt nám

  • Mjög gott viðmót, þjónustulipurð og samskiptahæfni

  • Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði í starfi og geta til að vinna undir álagi

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

  • Góð tölvukunnátta er skilyrði, þekking á Sögukerfi Landspítala kostur

  • Reynsla af ritarastörfum er kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, heilbrigðisritari, ritari, móttaka, skrifstofustörf

Tungumálahæfni: íslenska 3/5, enska 3/5

Starfshlutfall er 50%

Umsóknarfrestur er til og með 28.10.2024

Nánari upplýsingar veitir

Ragnheiður Sjöfn Reynisdóttir, ragnreyn@landspitali.is

Sími: 825-5156

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður á taugalækningadeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

17.10.2024

Umsóknarfrestur

28.10.2024