Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur/hjúkrunarnemi á lyflækningadeild

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

70-100%

Starf skráð

17.10.2024

Umsóknarfrestur

30.12.2024

Hjúkrunarfræðingur/hjúkrunarnemi á lyflækningadeild

Laus er til umsóknar 70-100% staða hjúkrunarfræðings á Sjúkrahúsinu á Akureyri, en einnig kemur til greina að ráða inn hjúkrunarnema sem lokið hefur a.m.k. 3 námsárum. Unnið er á þrískiptum vöktum í fjölbreyttu starfumhverfi og er staðan laus frá 1. janúar 2025.

Starfið býður upp á tækifæri til að þróa með sér mikla faglega þekkingu og hæfni í sjálfstæðum vinnubrögðum. Góð aðlögun er í boði með reyndum hjúkrunarfræðingum.

Næsti yfirmaður er Þóra Ester Bragadóttir, deildarstjóri lyflækningadeildar.

Helstu verkefni og ábyrgð

Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum. Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar.

Hæfniskröfur

  • Fullgilt hjúkrunarpróf og gilt íslenskt starfsleyfi sem hjúkrunarfræðingur (á ekki við ef um hjúkrunarnema er að ræða)

  • Jákvætt viðhorf, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð

  • Hæfileika í samskiptum og samvinnu

  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Starfshlutfall er 70-100%

Umsóknarfrestur er til og með 30.12.2024

Nánari upplýsingar veitir

Þóra Ester Bragadóttir, thorae@sak.is

Sími: 463-0100

Sólveig Hulda Valgeirsdóttir, solveigv@sak.is

Sími: 463-0100

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur/hjúkrunarnemi á lyflækningadeild

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

70-100%

Starf skráð

17.10.2024

Umsóknarfrestur

30.12.2024