Þjónustuaðili
Hafrannsóknastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Rekstrarstjóri eigna
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
01.10.2024
Umsóknarfrestur
14.10.2024
Rekstrarstjóri eigna
Hafrannsóknastofnun leitar eftir metnaðarfullum, öflugum og traustum aðila til að hafa yfirumsjón með rekstri eigna stofnunarinnar. Megin verkefnið er rekstur rannsóknaskipa.
Helstu verkefni og ábyrgð
Gerð rekstraráætlunar skipa og eftirfylgni með henni.
Tryggja áreiðanleika í rekstri innviða.
Yfirumsjón með viðhaldsáætlun eigna.
Ábyrgð á innkaupum og aðkeyptri þjónustu.
Samskipti við birgja og þjónustuaðila.
Hæfniskröfur
Nám sem nýtist í starfi, t.d. vélstjóra eða tæknifræðimenntun.
Þekking og reynsla af rekstri skipa er skilyrði.
Reynsla í gerð rekstraráætlana.
Nákvæmni, frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Rík þjónustulund, jákvæðni og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og VM Félag vélstjóra og málmtæknimanna hafa gert.
eða samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja:
Ítarleg ferilskrá.
Afrit af prófskírteinum.
Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
Tilnefning a.m.k. tveggja meðmælenda.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Umsókn gildir í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur. Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina og áskilur stofnunin sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Við ráðningu í störf hjá Hafrannsóknastofnun er tekið mið af jafnréttisáætlun stofnunarinnar og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Gerð er krafa um að umsækjendur hafi hreint sakavottorð.
Um stofnunina
Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, heyrir undir Matvælaráðuneytið og er stærsta rannsóknastofnun landsins á sviði haf- og vatnarannsókna. Stofnunin gegnir auk þess ráðgjafahlutverki varðandi sjálfbæra nýtingu og verndun auðlinda hafs og vatna. Höfuðstöðvar stofnunarinnar eru í Hafnarfirði en auk þess eru starfsstöðvar vítt og breitt um landið, tilraunaeldisstöð, tvö rannsóknaskip. Hjá stofnuninni starfa að jafnaði um 190 manns í fjölbreyttum störfum.
Gildi stofnunarinnar eru: Þekking - Samvinna - Þor
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 14.10.2024
Nánari upplýsingar veitir
Þorsteinn Sigurðsson, thorsteinn.sigurdsson@hafogvatn.is
Sólveig Lilja Einarsdóttir, solveig.lilja.einarsdottir@hafogvatn.is
Þjónustuaðili
Hafrannsóknastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Rekstrarstjóri eigna
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
01.10.2024
Umsóknarfrestur
14.10.2024