Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskólinn á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur við rannsóknir

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

30.09.2024

Umsóknarfrestur

21.10.2024

Sérfræðingur við rannsóknir

RHA - Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri auglýsir laust til umsóknar 100% starf sérfræðings við rannsóknir.

RHA er sjálfstæð eining innan Háskólans á Akureyri sem aflar sér einkum tekna með rannsóknaverkefnum og ráðgjöf fyrir ýmsa aðila innanlands sem utan. Hlutverk RHA er að efla rannsóknastarfsemi við Háskólann á Akureyri og styrkja tengsl hans við atvinnulífið. Einnig að vinna að þróun nýrra verkefna innan háskólans og koma þeim í réttan farveg. Sjá nánar á www.rha.is.

Helstu verkefni og ábyrgð

Auglýst er eftir sérfræðingi til rannsókna- og ráðgjafastarfa. Starfið felur í sér vinnu við rannsóknir á sviði félagsvísinda- og samfélagsrannsókna auk annars sem til fellur. Næsti yfirmaður er forstöðumaður RHA. Starfið er laust frá 1. janúar 2025.

Hæfniskröfur

  • Meistaragráða í félagsvísindum, landfræði, hagfræði eða öðrum greinum sem nýtast í starfi.

  • Doktorspróf er kostur

  • Góð þekking á eigindlegri og megindlegri aðferðafræði, skýrsluskrifum og framsetningu niðurstaðna.

  • Reynsla af þátttöku í innlendum og alþjóðlegum rannsóknarverkefnum er skilyrði.

  • Góð almenn tölvukunnátta og kunnátta í einu eða fleiri tölfræðiforritum.

  • Jákvæðni og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.

  • Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.

  • Góðir skipulagshæfileikar og geta til að vinna sjálfstætt og í teymi.

  • Við mat á umsóknum er tekið mið af hversu vel viðkomandi uppfyllir þarfir RHA.

Umsókn skal fylgja:

  • Greinargóð skýrsla um náms- og starfsferil.

  • Staðfest afrit af viðeigandi prófskírteinum á íslensku eða ensku.

  • Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.

  • Tilnefna skal a.m.k. tvo meðmælendur og er æskilegt að annar þeirra sé næsti yfirmaður í núverandi eða fyrra starfi umsækjanda.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.

Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996. RHA áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur öll kyn til að sækja um laus störf.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 21.10.2024

Nánari upplýsingar veitir

Arnar Þór Jóhannesson, arnar@unak.is

Sími: 4608901

Þjónustuaðili

Háskólinn á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur við rannsóknir

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

30.09.2024

Umsóknarfrestur

21.10.2024