Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn á Austur­landi

Upplýsingar um starf

Starf

Lögreglumenn - Eskifjörður - Lögreglustjórinn á Austurlandi

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

30.08.2024

Umsóknarfrestur

18.09.2024

Lögreglumenn - Eskifjörður - Lögreglustjórinn á Austurlandi

Við embætti lögreglustjórans á Austurlandi eru lausar til umsóknar stöður lögreglumanna með starfsstöð á Eskifirði. Gert er ráð fyrir að lögreglustjóri setji í stöðurnar frá og með 1. október 2024 eða skv. samkomulagi með skipun í huga að sex mánaða reynslutíma loknum.

Hjá embættinu starfa rúmlega þrjátíu manns á sex starfsstöðvum. Umdæmið er víðfeðmt með tólf þéttbýliskjarna, gott mannlíf, öflugt atvinnulíf og stórfenglega náttúru. Alþjóðaflugvöllur er á Egilsstöðum og vikulegar ferjusiglingar Norrænu til Seyðisfjarðar. Þá eru farþegaskip fjölmörg sem leggja að á Austfjörðum yfir sumartímann, ekki síst á Djúpavogi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Umdæmi lögreglustjórans á Austurlandi er víðfeðmt með sex starfsstöðvar; á Egilsstöðum, Eskifirði, Fáskrúðsfirði, í Neskaupstað, á Djúpavogi og Vopnafirði. Rannsóknardeild er á Fáskrúðsfirði sem sinnir öllu starfssvæðinu. Þar eru stærri brot og umfangsmeiri mál rannsökuð. Önnur mál eru að jafnaði til rannsóknar í almennri deild.

Verkefni lögreglu eru fjölbreytt á svo stóru starfssvæði með hálendiseftirliti, landamæraeftirliti og virku eftirliti í tengslum við ferðir Norrænu sem siglir vikulega til hafnar á Seyðisfirði.

Hæfniskröfur

Umsækjendur þurfa að uppfylla almenn skilyrði til að gegna lögreglustarfi skv. 28. gr. lögreglulaga nr. 90/1996.

Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómaprófi í lögreglufræðum sem jafngildir að minnsta kosti 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi. Heimild er þó til að ráða ófagmenntað fólk til tímabundinna afleysingastarfa ef ekki sækja um fagmenntaðir einstaklingar. Þekking á lögreglukerfinu (LÖKE) er kostur. Færni í mannlegum samskiptum, góðir skipulagshæfileikar, frumkvæði, nákvæmni í vinnubrögðum og hæfni til að starfa í hóp eru nauðsynlegir eiginleikar. Æskilegt er að umsækjendur hafi gott vald á íslensku og góða almenna tölvukunnáttu.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.

Ráðningarkjör eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og Landssambands lögreglumanna. Starfshlutfall er 100%. Um er að ræða vaktavinnu og bakvaktir.

Umsóknir, sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Lögreglustjórinn á Austurlandi setur í stöðurnar. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um setningar liggur fyrir. Umsókn gildir í 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests. Umsækjendur um sumarstarf sem þegar hafa sent inn umsókn þurfa ekki að gera það að nýju.

Embættið leggur áherslu á jafnrétti og hvetur fólk af öllum kynjum til að sækja um.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 18.09.2024

Nánari upplýsingar veitir

Kristján Ólafur Guðnason, kog01@logreglan.is

Sími: 4440635

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn á Austur­landi

Upplýsingar um starf

Starf

Lögreglumenn - Eskifjörður - Lögreglustjórinn á Austurlandi

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

30.08.2024

Umsóknarfrestur

18.09.2024