Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Deildarstjóri ræstingaþjónustu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
30.10.2024
Umsóknarfrestur
11.11.2024
Deildarstjóri ræstingaþjónustu
Rekstrar- og mannauðsvið Landspítala leitar að öflugum deildarstjóra ræstingaþjónustu til að leiða metnaðarfullt starf, uppbyggingu og þróun deildarinnar sem fyrirhuguð er á næstu árum.
Ræstingaþjónusta Landspítala sér um að vinna eftir skipulagi sem tryggir að húsnæði spítalans (105.000 m2) sé til fyrirmyndar og gæði ræstinga séu í samræmi við skilgreind gæði. Deildarstjóri þarf að vera með einstaklingsvottun í þekkingarstigi 3 og 4 samkvæmt Insta 800 staðlinum, ásamt því að hafa setið námskeið viðurkennds aðila og framkvæmt skoðanir í hreinlætisstaðlinum DS 2451-10. Deildarstjóri vinnur náið með ræstingastjórum að daglegu skipulagi ásamt því að bera ábyrgð á daglegri ræstingu, áætlanagerð og heildarskipulagi hreingerninga ásamt framkvæmd skoðana í samræmi við staðlana.
Leitað er að einstaklingi með framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfni, getu til að stjórna breytingum og móta jákvætt starfsumhverfi. Viðkomandi þarf að búa yfir frumkvæði, drifkrafti og brennandi áhuga á að starfa með stjórnendum, starfsfólki og aðilum innan og utan spítalans að framþróun og umbótum í þjónustu sem styður við stefnu Landspítala.
Starfshlutfall er 100% og er starfið laust samkvæmt samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ábyrgð á faglegri þróun, starfsmannamálum og fjármálum deildarinnar
Stuðla að virkum og góðum samskiptum við deildir spítalans og framúrskarandi þjónustu með öryggi og vellíðan sjúklinga og starfsfólks spítalans að leiðarljósi
Tryggja árangursríkt samstarf og góð samskipti innan deildarinnar, skýrt verklag, gæði og fagmennsku
Vinna með stjórnendum og starfsfólki að framþróun og umbótum í þjónustu, verklagi og umhverfi starfseminnar
Stefnumótun deildarinnar, áætlanagerð og eftirfylgni
Skipulag reglubundinna skoðana, sótthreinsiþrifa, eftirlit með verklagi og árangri
Samskipti við verktaka/framkvæmdaraðila
Þátttaka í umbóta- og þróunarverkefnum á deild og sviði
Hæfniskröfur
Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar
Jákvætt lífsviðhorf og lausnamiðuð nálgun
Frumkvæði, drifkraftur og stefnumótandi hugsun
Stjórnunarreynsla af sambærilegri starfsemi
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Krafa um að hafa unnið og framkvæmt skoðanir í ræstingum á sjúkrahúsi í samræmi við gæðastaðla Insta 800 og DS 2451-10
Einstaklingsvottun í þekkingarstigi 3 og 4 samkvæmt Insta 800 staðlinum
Gott vald á íslensku og ensku
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: deildarstjóri, stjórnunarstarf, ræstingaþjónusta,
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 11.11.2024
Nánari upplýsingar veitir
Gunnar Ágúst Beinteinsson, gunnarab@landspitali.is
Árný Ósk Árnadóttir, arnyo@landspitali.is
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Deildarstjóri ræstingaþjónustu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
30.10.2024
Umsóknarfrestur
11.11.2024