Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Hafrann­sókna­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur á sviði umhverfisáhrifa sjókvíaeldis

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

23.08.2024

Umsóknarfrestur

09.09.2024

Sérfræðingur á sviði umhverfisáhrifa sjókvíaeldis

Hafrannsóknastofnun auglýsir eftir sérfræðingi til þess að starfa við fjölbreytt verkefni tengdum umhverfisáhrifum sjókvíaeldis. Starfið felur í sér rannsóknir og vöktun á umhverfi og lífríki fjarða ásamt úrvinnslu gagna, túlkun þeirra og miðlun. Starfsstöð getur verið í Hafnarfirði, á Ísafirði eða á Neskaupsstað.

Ásamt því að vakta umhverfisáhrif sjókvíaeldis á firði metur Hafrannsóknastofnun burðarþol fjarða og gefur álit í tengslum við leyfisveitingar í sjókvíaeldi. Þessi verkefni og önnur sem stofnunin sinnir tengjast og er gert ráð fyrir að nýr sérfræðingur geti tekið þátt í þeirri þverfaglegu teymisvinnu sem á sér stað innan stofnunarinnar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Úrvinnsla gagna og miðlun niðurstaðna í ræðu og riti.

  • Þátttaka í rannsóknaleiðöngrum og annarri sýnatöku.

  • Aðkoma að skipulagningu rannsókna.

Hæfniskröfur

  • Framhaldsmenntun í efnafræði, eiturefnavistfræði, líffræði eða skyldum greinum.

  • Hæfni í gagnaúrvinnslu og notkun tölfræðiforrita (R eða sambærilegt) er kostur.

  • Þekking og reynsla við að vinna með landupplýsingakerfi er kostur.

  • Metnaður, frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum.

  • Jákvætt viðmót, samstarfsvilji og lausnamiðuð nálgun.

  • Góðir samskiptahæfileikar og hæfni til að vinna í teymi.

  • Hæfni til að miðla upplýsingum á skýran og skilmerkilegan hátt.

  • Skilyrði að geta tjáð sig í ræðu og riti á íslensku og ensku. Tök á norðurlandamáli er kostur.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra náttúrufræðinga hafa gert.

Umsókn skal fylgja:

  • Ítarleg ferilskrá.

  • Afrit af prófskírteinum.

  • Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.

  • Tilnefning a.m.k. tveggja meðmælenda.

Sótt er um starfið á Starfatorgi. Gerð er krafa um að umsækjendur hafi hreint sakavottorð.Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina.Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur.Hafrannsóknarstofnun áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.Við ráðningu í störf hjá Hafrannsóknastofnun er tekið mið af jafnréttisáætlun stofnunarinnar og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um.

Um stofnunina

Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, heyrir undir Matvælaráðuneytið og er stærsta rannsóknastofnun landsins á sviði haf- og vatnarannsókna. Stofnunin gegnir auk þess ráðgjafahlutverki varðandi sjálfbæra nýtingu og verndun auðlinda hafs og vatna. Höfuðstöðvar stofnunarinnar eru í Hafnarfirði en auk þess eru starfsstöðvar vítt og breitt um landið, tilraunaeldisstöð og tvö rannsóknaskip. Hjá stofnuninni starfa að jafnaði um 190 manns í fjölbreyttum störfum.

Gildi stofnunarinnar eru: Þekking - Samvinna - Þor

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 09.09.2024

Nánari upplýsingar veitir

Hrönn Egilsdóttir, hronn.egilsdottir@hafogvatn.is

Sími: 6956705

Sólveig Lilja Einarsdóttir, solveig.lilja.einarsdottir@hafogvatn.is

Þjónustuaðili

Hafrann­sókna­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur á sviði umhverfisáhrifa sjókvíaeldis

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

23.08.2024

Umsóknarfrestur

09.09.2024