Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Vegagerðin

Upplýsingar um starf

Starf

Birgðafulltrúi á rekstrardeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

25.07.2024

Umsóknarfrestur

12.08.2024

Birgðafulltrúi á rekstrardeild

Starf birgðafulltrúa á rekstrardeild Vegagerðarinnar er laust til umsóknar. Starfið er 100% starf unnið á starfsstöð okkar í Suðurhrauni 3 í Garðabæ. Vinnutími er kl. 08:00-15:12 alla virka daga.

Á rekstrardeild starfa um 15 manns. Rekstrardeild vinnur þvert á deildir Vegagerðarinnar og þjónustar fasteignir, vöruinnkaup og birgðastýringu ásamt öðrum tengdum verkefnum. Vegagerðin er með 18 starfsstöðvar um allt land. Starfsemi rekstrardeildar er í Suðurhrauni 3 en þjónustuumdæmi deildarinnar nær yfir landið allt.

Helstu verkefni og ábyrgð

Almenn störf við afgreiðslu birgða, frágangur og pökkun á vörusendingum, sendiferðir, skráning í birgðabókhald ásamt öðrum tilfallandi verkefnum.

Hæfniskröfur

  • Almenn ökuréttindi

  • Próf á lyftara er æskilegt

  • Almenn tölvukunnátta og hæfni til að efla hana

  • Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt og hóp

  • Góðir samskiptahæfileikar og jákvætt viðhorf

  • Gott andlegt og líkamlegt atgervi

  • Gott vald á íslensku í ræðu og riti

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Áhugasamir einstaklingar eru hvattir til að sækja um óháð kyni. Umsókn skal fylgja ferilskrá og mynd af ökuréttindum. Öllum umsóknum um starfið verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi. Um 350 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 12.08.2024

Nánari upplýsingar veitir

Helgi Gunnarsson, helgi.gunnarsson@vegagerdin.is

Sími: 522 1000

Þjónustuaðili

Vegagerðin

Upplýsingar um starf

Starf

Birgðafulltrúi á rekstrardeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

25.07.2024

Umsóknarfrestur

12.08.2024