![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/6PHUWW83ZRNXU0ydxQsipf/6f460fab1a36daf4c6faf4e604b4741a/Logo.png)
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Klínískir lyfjafræðingar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
19.07.2024
Umsóknarfrestur
12.08.2024
Klínískir lyfjafræðingar
Viltu vinna á skemmtilegum vinnustað með fjölbreytt verkefni? Fórst þú í lyfjafræði til að vinna náið með öðrum heilbrigðisstéttum? Hefur þú áhuga á að vinna í teymi fólks sem brennur fyrir því sem það er að fást við á hverjum degi? Þá gætum við verið með rétta starfið fyrir þig.
Lyfjaþjónusta er að leita að öflugum klínískum lyfjafræðingum með sterka þjónustulund og færni til að móta nýtt verklag í samstarfi við aðra lyfjafræðinga sem og aðrar fagstéttir. Við leitum að klínískum lyfjafræðingum sem eru sveigjanlegir, framsæknir og tilbúnir að takast á við verkefni í mótun. Um er að ræða dagvinnu en einnig tekur klínískur lyfjafræðingur bakvaktir.
Lyfjaþjónusta er stöðugt að þróa starfsemi sína til að bæta lyfjaöryggi og lyfjaumsýslu á Landspítala. Nú starfa um 40 lyfjafræðingar í fjölbreyttum verkefnum á Landspítala. Það er mikil framþróun innan Lyfjaþjónustu og hafin er vinna við mótun verkferla og eflingu þjónustustigs.
Helstu verkefni og ábyrgð
Skráning lyfja við komu og lyfjarýni
Samskipti við lyfjaskömmtunarfyrirtæki og aðrar deildir sjúkrahússins
Fagleg ráðgjöf til heilbrigðisstarfsfólks og skjólstæðinga um lyfjatengd mál
Þátttaka og stuðningur við uppbyggingu og þróun þjónustuteyma
Þátttaka í uppbyggingu gæðakerfis
Þátttaka í þverfaglegum verkefnahópum
Verkefni innan klínískrar lyfjaþjónustu
Þátttaka í þjálfun nema og nýrra starfsmanna
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi sem lyfjafræðingur
Framhaldsnám í klínískri lyfjafræði
Reynsla af klínískri vinnu á spítala
Reynsla af störfum miðstöðvar lyfjaupplýsinga og eitrunarmiðstöðvar
Sjálfstæð, skipulögð, nákvæm og öguð vinnubrögð
Afbragðs samskiptahæfni og sveigjanleiki
Öflugur liðsmaður og jákvætt viðmót
Góð íslensku- og tölvukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Lyfjafræðingafélag Íslands hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6700 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, lyfjafræðingur, klínískur lyfjafræðingur, klíník
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 12.08.2024
Nánari upplýsingar veitir
Þóra Jónsdóttir, thorajo@landspitali.is
Arnþrúður Jónsdóttir, arnthruj@landspitali.is
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/6PHUWW83ZRNXU0ydxQsipf/6f460fab1a36daf4c6faf4e604b4741a/Logo.png)
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Klínískir lyfjafræðingar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
19.07.2024
Umsóknarfrestur
12.08.2024