Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla á höfuð­borg­ar­svæðinu

Upplýsingar um starf

Starf

Geðhjúkrunarfræðingur - Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

22.07.2024

Umsóknarfrestur

20.08.2024

Geðhjúkrunarfræðingur - Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana

Hefur þú áhuga á að veita þjónustu sem er heildræn og notendamiðuð með áherslu á samþætta nálgun, í teymi sem hefur að leiðarljósi að skoða alla þætti sem hafa áhrif á andlega heilsu skjólstæðinga teymisins.

Í boði er að vinna í frábæru þverfaglegu teymi með fjölbreytta námsmöguleika, innleiðingu í starf undir handleiðslu mentors og handleiðslu hjá geðhjúkrunarfræðingi.

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar eftir geðhjúkrunarfræðingi til starfa í nýtt þverfaglegt Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana. Teymið er í stöðugri þróun, því gefst mikið tækifæri til að þróa faglega sérþekkingu innan geðhjúkrunar.

Teymið sinnir einstaklingum, 18 ára og eldri með þroskahömlun og klínískan geðrænan vanda og /eða krefjandi hegðun. Skjólstæðingar teymisins hafa oft á tíðum annan fjölbreytilegan taugaþroska og sjúkdóma s.s. einhverfu. Áhersla er lögð á þverfaglegt starf og unnið er þvert á stofnanir heilbrigðis og velferðarþjónustu á landsvísu.

Ef þú hefur áhuga á vinna í fjölbreytilegri samfélagsgeðþjónustu og í öflugri teymisvinnu, þar sem góður starfsandi ríkir, þá er þetta spennandi tækifæri.

Um er að ræða 50-100 % ótímabundið starf og ráðið er í starfið frá 1. október eða eftir nánara samkomulagið.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Styðjandi samtalsmeðferð

  • Gerð meðferðaáætlana, endurmat og eftirfylgd

  • Umsjón og yfirsýn yfir meðferð og úrræði notendahóps

  • Þverfagleg teymisvinna

  • Ráðgjöf og fræðsla til notenda og aðstandenda

  • Skipuleggur og heldur fjölskyldufundi

  • Námskeiðshald

  • Heilsumælingar og ráðgjöf

  • Samvinna við aðra fagaðila innan sem og utan stofnunar

  • Þáttaka í þróun og uppbyggingu meðferðarteymis

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Meistaranám eða diplómanám í geðhjúkrun skilyrði

  • Skipulagshæfni og áhugi á verkefnavinnu

  • Reynsla af teymisvinnu kostur

  • Góð samskiptahæfni og jákvætt viðhorf skilyrði

  • Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi

  • Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun

  • Góð almenn tölvukunnátta

  • Íslenskukunnátta skilyrði

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.

Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 50-100%

Umsóknarfrestur er til og með 20.08.2024

Nánari upplýsingar veitir

Bjargey Una Hinriksdóttir, bjargey.una.hinriksdottir@heilsugaeslan.is

Sími: 513-6750

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla á höfuð­borg­ar­svæðinu

Upplýsingar um starf

Starf

Geðhjúkrunarfræðingur - Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

22.07.2024

Umsóknarfrestur

20.08.2024